afmæli Guðrúnar :)

Jæja þá er komið að afmælisrununni,jú elsta stelpan orðin 15 ára.... vá það var í gær sem ég varð 15 ára gömul hehehe.... tíminn er óhugnanlega fljótur að líða,en ég eldist samt ekki neitt... eða hvað ????  hér sit ég og blogga á meðan að Guðrún dansar hér og er farin að fagna 15 afmælideginum sínum,hún passaði auðvitað sig á því að eiga afmæli allann daginn,því hún fæddist 5 mín. eftir miðnætti :) snjallt hjá þér vinan...

 EN.. TIL HAMINGJU MEÐ 15 ÁRA AFMÆLISDAGINN ÞINN ELSKU GUÐRÚN OKKAR !!!!!! NJÓTTU DAGSINS Í BOTN.... Wizard   KNÚSSSSS.......Heart15 ára skvísa :)

OG ELSKU GUGGA MÍN,INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ 35 ÁRIN !!! NJÓTTU DAGSINS KNÚSSSSSS.....Wizard

En hjá mér er barasta ekkert sérstakt í fréttum,er farin að undirbúa afmælisveisluna fyrir hann Gunnar sem ég held á n.k. laugardag,þar verða gaurarnir 14 samtals og örugglega mikið fjör.... en mér gengur ekkert í þessari blessaðari megrun kemst bara ekkert út þessa dagana,Adrían búin að vera með kvef og farið neitt í göngutúra,er því heima í áti allann daginn Angry ég veit bara ekki mitt rjúkandi ráð lengur, og ég einhvernveginn kemst bara ekki í gírinn og það er líka að koma jól eftir nokkrar vikur,ég kemst sko ekki í kjólinn fyrir jólin á ár.... Frown  það er alveg öruggt.... arrg.... enívei ég spá í að kveðja núna og knúsa áfmælisbarnið fyrir svefninn.... knússs til ykkar Heart


Allt í hers höndum !!!!

Ég verð bara að segja það að ég veit ekki hvar þetta endar allt saman,eftir að Hallgrímur fór aftur að vinna þá er meiriháttar púsluspil að koma öllu heim og saman,mér er farið að kvíða fyrir hverju kvöldi því þá eru þau verst,börnin alveg snar frá klukkan ca. 18:00 og til 21:30  og allir orðnir þreyttir svo er bara logn,en unglingurinn er sko heldur ekki að létta verkin heldur bætir hún bara við vandamálum og er í straffi þessa dagana,þykist auðvitað vita allt miklu betur en aðrir ding..ding..ding... jú einhverntímann var maður víst svona og ég fæ það allt saman tl baka núna !!! flass back !!!!! minnir mig ótrúlega á sjálfa mig sem ungling... omg !!! ég á ekki von á góðu á næstunni....Woundering  enívei.... ég er sem sagt komin aftur frá Reykjavíkinni og allt gekk vel,hittum fullt af fólki en hitti samt ekki alla sem ég vildi hitta vegna veikinda hjá sumum og anna hjá mér Wink og hjá öðrum, ég fékk mér auðvitað smá útrás fyrir að eyða svolitlu ég veit ekki hvað skal segja en það grípur mig alltaf kaupæði þegar að ég kem suður,fer í kringluna og mig langar að kaupa svo margt að mig verkjar,auðvitað bara á krakkana en ekki á sjálfa mig,það kemur kannski með kílóatapinu sem verður á næstunni hehehe. þá má Hallgrímur passa budduna vel !!!!!  Tounge  senn líður að afmælum barnanna ( Guðrúnar og Gunnars ) og þá þarf að baka og halda afmælisveislu fyrir Gunnar,ég vona bara að mamma komist til okkar og hálpi mér með baksturinn,ef bakið leyfir en hún var að koma úr uppskurði sem var gerður endaðan ágúst og verður sem sagt í 6 mánuði að jafna sig eftir,en hún vill samt koma og hjálpa til ohhhh.. hún er bara æði !!!! og frábær bakari.... takk takk dúllan mín... Smile jæja ég er að spá í það að fara að taka úr þvottavélinni og halda áfram að tala unglinginn minn til,gangi mér vel !!!!! góða nótt og hafið það gott,kv. Dóran HeartAdrían Blöndal 2 og 1/2 mán.

Kominn suður :)

Æðislegt að vera komin til Reykjavíkur,ferðalagið gekk vel og prinsinn vaknaði klukkan átta í morgun og heimtaði pela,allt orðið tómt í koti mömmu hehehe....   enívei... við ætlum svo í kringluna og fata Gunnar upp,hann er orðin svo hræðilegur til fara,allar buxur rifnar eða orðnar of litlar er farin að skammast mín mjög.....  en við ætlum að hitta helling af fólki og mig hlakkar mikið til,hlakka til að sjá muninn á Rósu Maríu og Adrían núna.. hehehe.....   ég ætlaði bara aðeins að leyfa ykkur að vita af mér og mínum, talvan mín er í viðgerð og kem aftur eftir helgi og heila Reykjavíkurferð....  farið vel með ykkur á meðan... sjáumst,kv. Dóra Reykjavíkurmær  :)

Einar buxur :(

Já ég er bara að verða vitlaus á þessu !!!!! ég er orðin alltof feit og ég er að tapa mér !!!! ég á einfaldlega bara eina buxur sem ég get látið sjá mig í,éger aðeins búin að gleyma mér í sælgætinu þessa dagana,sko ég fer í göngutúr ægilega lukkuleg með það kem svo við í Saffó og viti menn ég kaupi mér vínabrauðslengju eða snúð eða súkkulaði og svo er ég hissa á því að ég passa ekki í nein föt Devil ég get svo mikið sjálfri mér kennt um að það er bara sorglegt Angry ég pantaði mér buxur í zik zak og það stærri en venjulega en ég komst bara ekki í þær og þarf því ennþá stærri sem ég er ekki að gúdder,hvað á ég að gera ????? jú ég er farin í stranga megrun og í dag var það dagur númer eitt og mig langaði svooo mikið í mitt súkkulaði en ég endaði á því að fá mér epli Grin hjúkkk !!!! en ég vona að ég geti tekið mig á og gert þetta sjálf og með því að þramma hér um götur bæjarins,dekka vatn og borða mikið af ávöxtum og grænmeti og herbalifesjeik,ég bara verð... Hallgrímur fór í lazer aðgerð á augunum og er farin að sjá svooo vel að ég er í mínus yfir því,núna sér hann mig í réttu ljósi... omg nú skilur hann við mig ef ég tek mig ekki á Woundering er ég viss um....  hehehe....  en þetta er ekki fyndið,ég var svo reið út í mig í gær,þegar að ég fattaði hvað ég væri að gera sjálfri mér,þegar að ég leit yfir síðustu vikur og ég kallaði það að mig vantaði alltaf orku.. æji ég er svoo orkulaus ( segi ég alltaf ) ég þarf súkkulaði eða eitthvað með miklum sykri.... þetta er bara hræðilegt og þessu verð ég að breyta strax !!!!  ef ég held svona áfram þá enda ég sem offitusjúklingur,það er alveg á hreinu..... NÚ ER ÉG KOMIN MEÐ NÓG !!!!     og ég er að tapa sjálfsvirðingunni,þá er það orðið slæmt.... viljið þið hjálpa mér og hvetja mig áfram,ef þið viljið ekki sjá mig sem offitusjúkling,plísssss.... hjálp !!!! eða að heyra í dánarfréttunum um það að ég hafi dáið úr offitu,en það endar einfaldlega með því ef ég geri ekkert í málunum,í kvöld byrja ég á magaæfingunum úffff.. þungu fargi af mér létt núna en allavega er bara brjálað að gera,ég er að reyna að halda Adrían á brjósti en er hrædd um að ég sé á síðustu dögunum með það,hgann er farin að arga og garga á þau Frown mé finnst það svooo leiðinlegt því að ég er búin að vera svo dugleg að reyna allt sem ég get til að halda mjólkinni og mér finnst eins og ég sé að svíkja hann ef þetta gengur ekki upp,hundleiðinlegt..... en ég verð að fara núna,verðum í bandi,,síja.... knússss Heart kv. ein í molum :(  ég verð að verða aftur svona !!! til að byrja með...

mbl.is hehehe.....

Já og meina morgunblaðið já takk og ekki seinna en klukkan 7:00 á morgnanna,úffff.... Guðrún Ásta tók að sér að bera út moggann í 3 daga,það þýddi það að hún þurfti að vera vöknuð klukkan 5:30 á morganna,reyndar fór Hallgrímur með henni í þetta og kenndi henni(og Gunnar með auðvitað) eftir þessi 3 skipti vill hún aldrei gera þetta aftur og ekkert skrítið við það,en spáið í það hvað allir eru orðnir frekir á lífið og tilveruna,þegar að ég var lítil þá bar í út morgunblaðið,dv og tímann og var aldrei að því fyrr en eftir skóla og aldrei sagði neinn neitt... núna ef blaðið er ekki komið inn um lúguna klukkan 8:00 þá er strax kvartað,svona er þetta líka orðið í vinnunni hjá manninum mínum sem er bílstjóri og ef hann er ekki kominn með vörurnar fyrir klukkan 7:00 á morgnana og ekki búið að keyra þær út um 8:00 þá er allt vitlaust.. spáið í þetta hvernig kapphlaup lífsins er orðið Woundering og ef nágrannin kaupir sér flottan jeppa,þá er næsti granni komin á flottari jeppa og svona heldur það áfram,erum við að flippa út af þessu lífsgæðakapphlaupi ????  ef það er útsala einhversstaðar þá eru allir mættir nokkrum klukkustundum fyrir opnun svo að maður missi nú ekki af neinu.. ÓTRÚLEGT !!!!!   ég hef aldrei gert þetta og ég ætla aldrei að gera þetta Grin ég verð stundum svo skelfd þegar að ég hugsa um þetta lísgæðakapphlaup,en þið ???? 

En allavega þá er bara gott að frétta héðan og ég er búin að kaupa mér sófasett á tilboði,en ég beið ekki í biðröð til að ná honum hehehe....  minn var einfaldlega brotinn,rifinn og slitinn og við komumst bara ekki frá þessu,jú ég er búin að selja hlaupabrettið mitt Frown ég varð að gera það vegna plássleysis það var að gera mig brjálaða að hafa brettið hér í stofunni,ég ætla bara að vera dugleg að labba úti með Adrían í vagninum á daginn og hana nú !!!! ég skal ná mér niður um 20 kg. og núna er elsku Þorgerður mín komin aftur og hún labbar þá með mér,allavega þangað til að hún byrjar að vinna,jibbbííí.... þá er ég ekki lengur einmanna á daginn,ég er barasta alltaf ein og hitti engan það eru allir svooo upptekknir.... en svona er lífið bara, en þá kom Þorgerður og bjargaði mér frá einmannaleikanum, velkominn heim Þorgerður mín !!!!!!  það gengur alveg ótrúlega vel að gefa Örnu lyfin sín,hún kemur mér sífellt á óvart Wink hún er nú að smálagast með hægðirnar og ég vona að þetta taki nú ekki langan tíma hjá henni,hún fór svo til augnlæknisins og hann var mjög ánægður með hana,en það á að sjá til með aðra leppmeðferð eftir hálft ár.. úfff... brjálað að gera á stóru heimili,Guðrún er yfirklappstýra í skólanum sínum,áfram Guðrún !!!!  og Gunnar er barasta í fínu lagi með allar sínar afmælisveislur hér og þar hehehe.... Adrían bara stækkar og stækkar og brosir bara af þessu öllu saman,ótrúlega fljótt að líða allt saman og hann fljótur að stækka,en ég er allavega búin með tímann minn hér og stórt knússsssss...... Hearttil ykkar..... hafið það gott í lífsgæðakapphlaupinu.....nýja sófasettið mitt og Guðrún mín hehe...


Á Akureyri !!!!

Við fórum með Örnu til Akureyrar í dag í frekari rannsóknir út af hægðunarvandamálinu,og út úr því kom að hún er komin í vandræði með ristilinn og kominn á heilann helling af lyfjum og þetta vandamál verður ekker úr sögunni neitt á næstunni,þetta getur tekið nokkra mánuði eða nokkur ár Frown þetta vandamál er víst orðið bísna algengt en lítið talað um það..... við vorum ca. 4 klukktíma með hana þarna,en eftir sjúkrahúsdvölina fórum við í rúmfatalagerinn og fengum okkur 3 sæta sófasett og einn lazerboystól og borð í sjónvarpshornið okkar,hinn var orðin ónýtur... jesss !!!! hlakkar svo til að fá þetta á morgun Tounge svo enduðum við ferðina á því að kíkja í kaffi til Gauu vinkonu og fengum þar senseo kaffið góða og kökur með.. namminamm.... ég mátti nú alveg við því eða hitt þó heldur hehehe.... það var mjög gott að koma til hennar og sjá hvernig hún hefur það,og komst að því að hún er sko að brillera ein með fjögur börn og líka í skóla... hrós fyrir henni !!!!! takk æðislega fyrir okkur dúllan mín..... Sorrý elsku Doddi minn að við komum ekk ivið hjá þér við komum bara næst Grin klukkan var orðin svoo margt.

En annars gengur þetta bara vel og litla stýrinu dafnar bara vel og stækkar ört,eiginlega alltof fljótt ég sá einn 3 mánaða dreng í dag og hann var sko orðin stór og mannalegur,svona verður þá Adrían eftir ca. einn og hálfan mánuð,maður er svo fljótur að gleyma að það er ekkert eðlilegt hahaha.... jæja ég ætla að fara að henda mér í rúmið og fara svo í það að henda gamla settinu á haugana og þrífa vel áður en nýja settið kemur í hús liggaliggalái !!!! en við verðum bara í bandi,kv. sófasettagellan mikla :)


Óvænt heimsókn :)

Ég fékk sko heldur betur óvænta heimsókn í dag og aftur tókst Siggu að koma mér á óvart hehehe... reyndar var Sævar líka og það var svoo gaman að sjá þau,en mér tókst nú ekki að njóta þeirra eins og ég hefði viljað,Arna fór gjörsamlega á limmingunni og Adrían þurfti endilega að taka magakasst...... omg ég var alveg að flippa á þessu,langaði svo mikið til að fá mér kaffi í ró og næði með þeim en mér tókst það ekki,þau færðu mér þennan æðislega fallega blómvönd sem ég þó fæ að njóta.. takk æðislega fyrir mig Grin en heimsókn þeirra fékk mig þó til að taka endanlega þá ákvörðun að ég er búin að fresta ferð minni suður,ég einfaldlega treysti mér ekki að vera ein með Örnu og Adrían í heimsókn hjá vinum og vandamönnum.. sorrý.... hún Arna mín er svoo erfið að ég bara get þetta ekki og Adrían er svo mikið á brjósti ennþá að þetta gengur bara ekki upp,hvorki ég né þið mynduð njóta þess,Hallgrímur er að fara í lazer aðgerð á augunum og verður hálf blindur fyrsta daginn og má ekkert reyna á sig næstu dagana á eftir,þannig að ég yrði í raununni bara ein með þau,það er bara of erfitt og líka það að eftir að ég flutti úr bænum þá er ég ferkar hrædd orðin við að keyra í Reykjavík,ég er svo háð öðrum með að keyra mér..... nenni ekki að hanga bara heima hjá Vigdísi allann daginn og hún í vinnunni... sorrý Woundering 

En ein vinkona mín minnti mig á um daginn þegar að ég var að nefna hvað þetta er allt svoo erfitt núna,að maður hafi bara engann tíma í neitt,en þá sagði hún, en Dóra þetta gengur allt yfir vertu bara róleg þetta kemur allt saman.... og ég bara hjúkkkk.... takk fyrir að minna mig á að þetta er bara tímabil...... enívei.. ég þarf að fara að taka úr vélinni á og setja í þurrkarann og brjóta saman á meðan að Adrían sefur.. góða nótt elskurnar...... knússss..... Heart


4 börn og brjálað að gera :)

Manni leiðist þá ekki á meðan,en það má nú öllu ofgera hehehe... ef maður situr ekki í sófanum að gefa þá er maður í þvottahúsinu,ef ekki þar þá er maður að láta Gunnar læra eða komast aðeins í tölvuna og setja inn fleiri myndir já og eða að eiga við hana Örnu mína sem er búin að eiga erfitt síðan að Adrían fæddist úffff !!!! annað hvort tók ég ekki eftir því hversu ör hún er áður en sá litli kom eða það að hún er bara alveg ofbóðslega afbýðissöm og er gjörsamlega búin að missa sig í öllu sem heitir hegðun.. sko góð hegðun !! omg.....  sem betur fer er Guðrún mín orðin stór Wink

En ég sá það að þið eruð sko ekki búin að gleyma mér og ég hugsa til ykkar allra og ég get ekki gleymt neinum af ykkur kæru vinir Tounge takk fyrir skemmtilegar kveðjur !!!!! en Harpa frænka, það var komin tími til að koma með nýtt nafn í familíuna,ekki satt ??? enginn önnur saga á bak við nafnið Adrían önnur en sú að við gjörsamlega kolféllum fyrir þessu fallega og sérstaka nafni og líka það að í fjölskyldunni eru fyrstu stafirnir svona... 2xH 2xG og núna er þá komið 2xA  SNIÐUGT !!!!! er það ekki  ???

jæja ég þarf að þjóta.... knússsss !!!!!!  kv. Dóranstolt systkini :)


Eruð þið nokkuð búin að gleyma mér ???

Jæja þá komst ég aðeins frá til að blogga,það er bara bókstaflega brjálað að gera þessa dagana,ég er með Adrían á brjósti allann sólarhringinn,ég þakka fyrir að Hallgrímur sé heima hann gerir allt á heimilinu á meðan að ég sit með lillann í sófanum allann daginn,ég varla kemst á klóið og ég meina það.hvað þá sturtu,enda eru ekki margir nálægt mér þessa dagana,er farin að lykta hehehe.... en ég þakka ykkur öllum fyrir hlýjar kveðjur og gaman að sjá hvað margir voru að fylgjast með,ég er farin að sakna svoo að geta bloggað en það hlýtur að koma tími til þess,en þetta verður bara stutt núna og ég kem þegar að tími gefst til.... knús og kossar HeartAdrían Blöndal

Litill Prins Komin í Heiminn !:D

Já halló þetta er GuðrúnÁsta dóttir Halldóru , og kjéllan er buin að eignast litin son hann er alveg dýrlegur , eg er svoo montin ! gvuuð já.

Þetta byrjaði þannig að hun fékk smá hríðir 4 ágúst , og kúlan var að harna og harna Tobba kom og var dugleg að kíkja á mömmu , og svo um svona 1 missti hún smá vatn þegar hun var að fara að sofaa , þa kom vatn og hun for bara aftur niður ;p. og eg var svooo spennt váá ! en siðan kom tobba hlaupandi til mömmu , hun var farin að missa mikið vatn hjúkrunarkonan hringdi i hana og sagði henni að koma bara uppa sjukrahus , hun gerði það eins og skot eg get svo svarið það eg taraðist þegar gellan labaði burt , Crying váá allavegana hun sagði mer að hun hafi byrjað um svona 3 leitið i dag , og litill prins kom i heimin klukkan 16;45 held eg að hafi verið timinn , og hann var ca 16 merkur ;p , hann er með svona dökkt har og mikið ;O! váá , en mamma leit mjööög vel út ! miðað við aðstæður , og bara fæðingin gekk veel , Strakurinn er fæddur Á sunnudegi klukkan 16:45, 5 ágúst 2007 .. Til Hamingju Mamma Mín&Fjölskylda. KissingHeart..

-GuðrúnÁsta <3

269875210269875206

Yndislegur !


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Í kaffi hjá Dóru...

Höfundur

Dóra Maggý

Dóra Maggý

Hér tala ég um allt milli himins og jarðar,ég á 4 börn og ég tala svolítið um þau líka,einnig eru áhugamálin mín (fyrir utan börnin ) komin í geymslu í bili en þau eru,ferðalög,góðar bækur, hafa gaman í góðra vina hópi,versla og fl. og fl. velkomin og njótið að lesa um mig og mín áhugamál

Júní 2024
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30            

Nýjustu myndir

  • Apríl 09 mamamía partý,k. 40 ára,snjókarl og fl 071
  • Apríl 09 mamamía partý,k. 40 ára,snjókarl og fl 030
  • Apríl 09 mamamía partý,k. 40 ára,snjókarl og fl 007

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband