Kellan orðin 35 ára !! :)

omg !!!!! ég er bara ekki að ná því og mér finnst það svolítið skerí,sko.... mér fannst erfitt og asnarlegt að verða 30 ára,en mér líður einhvernveginn ennþá verr í dag,ég nálgast óðum 40 árin nei nei nei !!!!! en þetta er í lagi á meðan að maður er ungur í anda og ber á sig yngingarkrem og svoleiðis..... hehehehe..... not !!!! ég þarf nú ekkert svoleiðis Tounge eða er það ????

En ég og Berglind vorum að rifja upp í dag 25 ára afmælið mitt á Reynigrund 23 í kópavogi,þegar að við Berglind og Hafrún bjuggum saman,þá héldum við rosa partý handa mér og akkúrat núna eru nákvæmlega 10 ár síðan að við vorum í smökkun á  bollunni sem við hönnuðum í veisluna og vorum komnar heldur betur á rassgatið og enduðum á kíwíbollu sem var algjört gúmmulaði,svo höfðum við dúk á borðinu í veislunni þar sem gestir gátu skrifað hvað sem þeim datt í hug,það kom margt skemmtilegt út úr því,ég ætla að láta eina vísu sem Jökull vinur minn spann upp í partýinu,sem er bara ekki hægt að gleyma,og við Berglind rifjuðum hana upp í dag,og svona er hún.....flottastar !!!!

 If I was a bird

I wood fly in the sky

but I dont

so I wont.

hahahaha..... þetta er bara snilld hjá Jökli vini mínum,ég mun aldrei gleyma þessu. Wizard en það verður ekkert partý þetta afmælið vegna óléttu minnar,þannig að kannski geri ég eitthvað sniðugt á 36 eða 37 ára afmælinu mínu í staðin,en við Guðrún vorum að baka skúffuköku til að eiga klukkan 10:30 í fyrramálið fyrir Kristínu vinkonu,en ég fer svo bara í vinnuna á morgun og alla helgina,þannig að ég held að þessi afmælisdagur verði bara næstum eins og hver annar dagur,kallinn að vinna fram á kvöld Crying ekki er á allt kosið,en núna ætla ég að leggja mig og vakna snemma til að taka upp pakka og taka á móti Kristínu vinkonu,blómvendir eru vinsamlegst afþakkaðir en í staðin vil ég fá kvitt... takk takk..... love Grin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ elsku Dóra til hamingju með daginn.Ég man sko eftir þessu afmæli  það var sko fjör hjá okkur.Það rifjast upp margar góða minningar að lesa þetta ljóð eftir hann Jökul.En velkomin í 35 ára hópinn ,hann er ekkert svo agalegur.Eigðu góðan dag í dag sem aðra daga.

Luv Hafrún

Hafrún 23.2.2007 kl. 09:19

2 Smámynd: Sigríður Þóra

Elsku Kellingin mín til hamingju með daginn  og vertu velkomin í hóp þeirra eldri og vitrari

Eigðu sem bestan dag í dag

Sigríður Þóra, 23.2.2007 kl. 11:07

3 Smámynd: Ragna Fanney Gunnarsdóttir

Til hamingju með daginn gamla...hehe

knús Ragga og co

Ragna Fanney Gunnarsdóttir, 23.2.2007 kl. 14:50

4 identicon

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ELSKU RÚSÍNAN MÍN.

Kv Imba

Imba 23.2.2007 kl. 18:50

5 identicon

Til hamingju með daginn mín kæra.....held að 35 sé bara ekkert svo slæmt  hvernig væri nú að hóa í mig þegar þú heimsækir frænkuna á Seljabrautinni næst, væri gaman að sjá þig og litlu bumbuna ..kveðja, Systa

Systa 23.2.2007 kl. 22:47

6 identicon

Elskan til hamingju með daginn um daginn kv. frá ísó GSM

Gunna Sigga 28.2.2007 kl. 12:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Í kaffi hjá Dóru...

Höfundur

Dóra Maggý

Dóra Maggý

Hér tala ég um allt milli himins og jarðar,ég á 4 börn og ég tala svolítið um þau líka,einnig eru áhugamálin mín (fyrir utan börnin ) komin í geymslu í bili en þau eru,ferðalög,góðar bækur, hafa gaman í góðra vina hópi,versla og fl. og fl. velkomin og njótið að lesa um mig og mín áhugamál

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Apríl 09 mamamía partý,k. 40 ára,snjókarl og fl 071
  • Apríl 09 mamamía partý,k. 40 ára,snjókarl og fl 030
  • Apríl 09 mamamía partý,k. 40 ára,snjókarl og fl 007

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband