2.10.2006 | 00:21
Dagur 13.
Þessi dagur er sko ekki búin að vera góður,mataræðið alveg í samræmi við þynkuna,en viktin stóð samt í stað í morgun,gott mál,ég ætla bara að taka þessu hvort eð er rólega,en ætla samt ekki að fara að sukka svona um hverja helgi hehehe.... þannig að á morgun byrja ég bara aftur á mínu góða mataræði,og ætla bara að halda þessu eitthvað áfram,mér líður mjög vel á þessu 2ja vikna stranga, en við hjúin fórum á djammið og skemmtum okkur mjög vel og það var gjörsamlega kjaftfullt,við fórum í 2 partý áður og gátum því hellt svakalega í okkur áður en á ballstaðinn var komið, ég fékk mína fyrstu tyggjóplötu í næstum 2 vikur og það var eins og hin besta fullnæging ég ætla sem sagt að koma því á að geta fengið mér eitt tyggjó á dag,en veit bara ekki hvenær á daginn það er hentugast,ég get bara ekki alveg hætt að tyggja tyggjó rest of my life,a a ekki smuga tillögur væru vel þegnar !!!!! en ég segi bara aumingja börnin mín í dag,ég var í mestu vandræðum með að lyfta höfði,hvað þá að sjá um þau,sérstaklega hún Arna mín,hún er svoooo dugleg að hún er að leggja sig alla fram við að pissa í koppinn sinn í dag og neitaði að vera með bleyju,sem þýddi það að hún kúkaði í buxurnar og pissaði í buxurnar og ég var að verða brjáluð,mig langaði svoo mikið til að liggja bara í friði,en fékk auðvitað ekki frið til að vera með mína þynnku í ró og næði,ekki séns á endanum fór ég bara á fætur og fórum út á rúntinn og fengum okkur sjeik,þá fór nú allt að lagast,og ég hafði í kvöldmatinn... Danskar kjúklingabryngur með hrísgrjónum og kartöflum,alveg rosalega gott,og hef afgangana með mér í vinnuna á morgun,ég ætla sko ekki að gleyma því heima aftur eins og síðast ekki séns..... en ég held að þið séuð að verða þreytt á þessum skrifum mínum í dag og ætla því ekki að hafa þetta lengra í kvöld..... ég segi því bara ekkert stress og bless... kv. þynnkudívan með meiru.... P.S. Sigga mín ég drakk einn góðan fyrir þig í gær,ef ég hef þyngst á morgun,þá áttu von á feitu maili frá mér,elsku dúllan mín....
Um bloggið
Í kaffi hjá Dóru...
Færsluflokkar
Tenglar
tenglar tengdir átakinu
áhugavert
Fólk
Aðrir bloggarar
Börnin Mín og fleyri.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ skvís. Ég vissi ekki að þú værir í einhverju átaki enda vorum við kannski ekki að ræða það á laugardagskvöldinu! Enn og aftur, takk fyrir síðast.
Ester 2.10.2006 kl. 08:49
mér finnst miklu betra að þú lítir á þig sem dívu en ekki druslu
enda ertu algjör DÍVA í mínum augum
kossaklessa
Ragga F
Ragga 2.10.2006 kl. 09:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.