20.10.2006 | 00:24
Er að verða brjáluð á ...........
Ég er búin að reyna og reyna að búa til nýtt albúm,og það kemur alltaf villa og vistast ekki er alveg komin á það að henda helv... tölvunni út um gluggann ,getur einhver sagt mér hvort þetta sé hjá ykkur öllum sem eru með þetta blogg,þessa dagana,eða er þetta bara hjá mér ???? og jú,hjá Siggu vinkonu er þetta svona líka
hvað er hægt að gera í þessu ????? Ég ætlaði að fara í það að setja fermingarmyndirnar af dóttur minni í sér albúm og sér fyrir vini og fjölskyldu og fleyra,en ekkert get ég gert.
En annars er bara vinnuhelgi framundan og Magni og co. koma og halda ball hér á Króknum í íþróttahúsinu,og mig langar svoooo ógislega mikið á ballið,en ég kemst það ekki vegna vinnu og peningaleysis ég er svo svekkt,en Ragga og Viktor ætla að fara,elsku dúllurnar mínar..... skemmtið ykkur vel og drekkið einn kaldan fyrir mig,plíssss.....
Ég var að enda við það að þrífa íbúðina mína,eins og venjulega fyrir helgina,og fór að huga að jólunum sem eru að koma,þá þarf maður að fara í það bráðlega að taka niður gardínur og þvo, taka glerskápana og fínu glösin,upp á eldhússkápana og utan og að innan,skrifa jólakort og fl. og fl. alveg hellingur sem fer í undirbúning jólanna,sem er svo sem allt í lagi,nema þegar að maður er að hugsa það allt sem þarf að gera,verður maður svooo þreyttur,því að þetta er alveg hellingur sem þarf að gerast fyrir þennan yndislega tíma,en sumir eru nú farnir að sleppa öllum þessum þrifum,en ég vil það alls ekki,þetta er bara partur af stemminguni,eða allavega finnst mér það eruð þið byrjuð á einhverju ????
en annars er ég að spá í það að hætta núna og kveikja á ilmkertum og reykelsi og njóta þess að hafa allt hreint á meðan að það endist og blessuð börnin sofa bless í bili,kv. Dóran.
Um bloggið
Í kaffi hjá Dóru...
Færsluflokkar
Tenglar
tenglar tengdir átakinu
áhugavert
Fólk
Aðrir bloggarar
Börnin Mín og fleyri.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hellú. Ég er nú ekki byrjuð að þrífa fyrir jólin en ég keypti mér jólasmákökubox um daginn :o) En hvernig er með átakið? Á maður ekki að fara að sjá skráningu í kílóatapinu? Ég er svo spennt að sjá hvernig þetta þokast. Þetta er nefnilega að þokast frekar hægt hjá mér þessa dagana en ég veit upp á mig sökina, er ekki alltaf að standa mig allan daginn. Kveðja Lindan.
The suburbian, 20.10.2006 kl. 11:21
hæ hæ
hey ég gat gert nýtt albúm núna áðan og ekkert mál ,,,vona að það takist hjá þér líka.
var að setja inn myndir af sýningunni um helgina,,kíktu
kveðja
Sigga tóta
Sigríður Þóra, 20.10.2006 kl. 16:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.