Tækifæri,tækifæri !!!!! :)

skemmtileg mynd....

HJá mér er bara allt að gerast,það er bara allt eða ekkert,ég meina maður hefur ekki einu sinni tíma til að vera þunglyndur Tounge jú ég fékk það tækifæri upp í hendurnar,að selja herbalife með frábæru fólki og er að fara í skóla til Reykjavíkur um næstu helgi,en ég er búin að skrifa allt um það á átakið-dagbókin mín, síðunni minni...kíkið endilega á það..... ég arkaði svo á bókasafnið og tók eina sjálfstyrkingarbók,sem heitir Gerðu það bara !,eftir Guðrúnu G. Bergmann....  hún segir að þetta sé bók fyrir stelpur sem vilja vera stórar,já og núna ætla ég að verða stór stelpa og koma sjálfstraustinu í lag,því enginn getur gert það fyrir mig InLove því miður........  en þessi bók er bara algjör snilld,og hún er að henta mér mjög vel,ég þyrfti bara að kaupa mér hana og glugga í hana öðru hverju til að minna mig á... 

En annars er hún Arna mín að lagast af hlaupabólunni og fer líklegast aftur á leikskólann á fimmtudag eða föstudag,hún er ekkert búin að vera neitt með hita,eða neitt veik að ráði en var verst á laugardagskvöldinu af kláða og pirringi.

Í kvöld borðuðum við Ragga saman hér heima hjá mér í kvöldmatnum með púkunum,sem var bara mjöög skemmtilegt og mikið fjör á blessuðum börnunum W00t  takk fyrir komuna.....

Svo fékk ég þessa frábæru frétt í dag,sem mig langar svoooo mikið til að deila með ykkur hér,en ég er ekki viss um að ég megi það alveg strax,en ég er svooo spennt að ég er að kafna,en ég segi ykkur það um leið og ég má Tounge.....  en annars er ég að spá í að fara að koma mér í háttinn og byrja daginn á morgun snemma,ég kveð sem sagt í bili,bæjó....    


Hvað getur maður gert ??????

hlaupabólustelpan mín..

Ég er hér með hlaupabólustelpu sem veit ekki hvort hún á að gráta eða hlæja,sita eða standa,liggja á bakinu eða liggja á maganum,þessar bólur eru bara allstaðar,í hársvörðinum,andlitinu,eyrunum,nefinu,augunum,hálsinum,bleyjusvæðinu,já bara allstaðar !!!!! ég vorkenni litla skinninu mínu svooo mikið Errm henni klæjar og klæjar og er svo lítil og vesældarleg......

ég varð að fá að tjá mig svolítið hér,ég væri svo til í að fá þetta í staðinn fyrir börnin..... en ég er að spá í að fara að horfa á videó með Guðrúnu og Hallgrími,sjáumst......


Hlaupabóla nr. 2

Þegar að ég sótti Örnu mína á leikskólann í dag,þá sögðu þær mér það að það væru komnar nokkrar bólur á dömuna,og bara nýbúnar að finna þær,og jú jú það myndast fleyri og fleyri bólur á litla skinnið mitt og ég á vinnuhelgi Woundering þegar að Gunnar fékk hlaupabóluna fyrir akkúrat 2 vikum síðan,þá átti ég  líka vinnuhelgi,þannig að Hallgrímur lendir meira með þeim veikum en ég Pouty ég vil helst vera heima þegar að börnin mín eru veik,örugglega bara móðureðlið,en þetta eru nú ekki langir vinnudagar,þannig að ég get annast þau líka eftir vinnu Wink líður miklu betur með það......

En annnars er ekkert sérstakt að frétta,nema jú í gær fór ég á foreldrafundi barna minna,Guðrúnu gengur svona og svona vel,eingöngu vegna þess að hún á erfitt með sig í blessuðu unglingaveikinni sinni,hún er mikið að urra á kennarana og auðvitað mig,og þykist vita allt betur en allir aðrir,og allir eru hundleiðinlegir að hennar sögn Devil veit hreinlega ekki hvort eða hvenær þetta endar...... kannski nokkur ár til viðbótar... o m g......  komið bara upp á geðdeild landspítalans að heimsækja mig eftir einhvern x tíma hehehe.....

En hjá Gunnari gekk þetta bara vel,á reyndar erfitt með lesturinn og lítil framför,en gengur vel með stærðfræðina,en hann vandar sig meira við hlutina en að flýta sér,gott mál,hraðinn kemur svo bara hægt og bítandi,hann er reyndar ekki komin með unglingaveikina Cool hehehe... þó það nú væri.. ég vona bara að hann fái vægari unglingaveiki en hún Guðrún mín.....  svona mín vegna hehehe...Grin

en ég kveð að sinni og er að fara að sauma fyrir saumsprettu fyrir hana Guddu mína,kem aftur eftir helgi,knús og kossar.......


Árshátíðin búin og komin heim.....

svoo fín.......

Þetta var mjög skemmtileg helgi og heilsan rétt komin í lag aftur,en við fórum semsagt suður aðfaranótt föstudagsins vegna veðursins,ætlaði sko ekki að missa af árshátíðinni vegna veðurs,því ég slapp nú við hlaupabóluna hjá Örnu minni,en hún er nú ekki komin enn Wink við fórum á papaball á pleyers í kópavogi á föstudagskvöldinu og við skemmtum okkur alveg þrusuvel þar,ég var að vísu ofurölfi og heilsan eftir því á laugardeginum Shocking alveg hrikaleg.......    en við hjúin örkuðum nú samt í nýju Ikea og þar var margt skemmtilegt að sjá,þar á meðal sá ég draumaeldhúsinnréttinguna,hún er bara geggjuð,við versluðum ekki neitt þar í þetta skiptið,en við völdum okkur jólagjöfina frá mömmu,svo var byrjaði árshátíðin klukkan 19:00 og fengum fordrykk og Simmi og Jói sáu svo um skemmtiatriðin,sem voru bara mjög vel heppnuð og við hlógum mikið og hátt og dátt,en við vorum svolítið erfið í gang það kvöldið,enda ekki skrítið Sick við fengum dádýr í matinn sem var alveg rosalega gott og bráðnaði upp í munninum á manni,en samt mjög sérstakt kjöt,það voru ekki allir að fýla það..... klukkan 23:00 kom hljómsveitin Von og hélt uppi fjörinu til klukkan 3:00 og þeir voru alveg þrusu góðir,sem sagt mjög vel heppnuð helgi og allir sáttir,fyrir utan smá högg sem við hjúin fengum eftir ballið á laugardagskvöldinu Police sem leiddi til þess að það þurfti að kalla til Lögreglunnar,en enginn slasaðist við þessi átök,en þetta er of langt og of mikið drama til að ég nenni að útskýra þetta allt hér,en núna ætla ég að búa til albúm með nýjum myndum frá árshátíðinni.

En á sunnudeginum fórum við til Vigdísar og náðum í börnin og vorum þar í smástund,fórum svo í heimsókn til Magga Þórs frænda og Auðar kærustu hans og kíktum á litla sæta heimilið þeirra,og fengum þar köku og fleyra gott með kaffinu,á meðan að Hallgrímur svaf bara og uppgefinn eftir allt djammið,hann er kannski bara orðin gamall kallinn ???? Cool og hættur að þola allt þetta djamm hehehehe.... það er annað með mig 7 árum yngri og þoli örlítið meira en hann...Tounge en takk fyrir okkur, þetta er held ég komið nóg í bili,bless þangað til næst....


Byrjuð að pakka niður.......

svo fín....

Já nú er þessi árshátíð að skella á,og ég þarf að klára að þvo þvottinn,gera allt klárt,festa tölur,strauja,hugsa um hvernig klæði ég ætla að fá mér ofan við í kringluni,og setja á mig brúnkusprey,búin að fara í klippingu og strípur og ég er mjög ánægð með þetta lúkk,komin með styttra hár og örlítið meira af dökku en ég var með Cool kúúl...

en annars er Arna ekki ennþá komin með hlaupabóluna,og ég vona að svo verði áfram úr því sem komið er, hún má fá hana á sunnudagskvöldinu Tounge en núna ætla ég að drífa mig í háttinn og ég blogga meira eftir helgina og segi ykkur frá ferðinni,góða helgi kæru vinir  Heart

P.S. við Kristín vinkona elduðum saman kvöldmatinn,búrrítos og taco með hakki og öllu tilheyrandi,ógislega gott,takk fyrir skemmtilegan kvöldmat og góða ferð suður á morgun,hittumst á hótel sögu í stuði á föstudaginn og fáum okkur einn kaldan... InLove


Allt að koma !!!! :)

hellingur af bólum :(

Það er ýmislegt búið að ganga á núna síðustu daga,2 afmæli,Guðrún Ásta tognaði á hendi,Gunnar á hækjur,Gunnar fékk hlaupabóluna, Arna upp á sjúkrahús og núna í gær hljóp Guðrún á þvottasnúrur og fékk glóðurauga á hægra,jú þetta er dágóður pakki en þetta er ekkert sem við jöfnum okkur ekki á,þetta gæti verið verra,ég held að við þurfum á erfiðleikum að halda til að meta það góða sem við eigum og höfum og njótum þeirra betur Cool ekki satt ???

En allt er þetta að lagast og enn vona ég að Arna sleppi við hlaupabóluna þangað til á sunnudagskvöldið næsta,en ef ekki,þá verður bara að hafa það,það verður aftur árshátíð eftir 1 ár Wink svona er þetta bara þegar að við eigum blessuð börnin,en ég ætla samt að fara í klippingu og strípur á morgun klukkan 13:00 til vonar og vara,er að spá í að láta taka vel af því en ekki of stutt,og kannski fara út í dökkann lit,veit ekki,eða bara halda mig við dökkann undir og ljósan og örlítið af dökkum með ofan á ?????? kemur ljós á morgun,set mynd af mér með nýja hárið með næsta bloggi Tounge 

Svo hringdi Inga frænka í mig í dag,sem var mjööög skemmtilegt því við höfum ekki heyrst eða sést í nokkur ár,en vorum samt oft að hittast þegar að ég var lítil,man svo mikið eftir Ingu,Eggerti,Gumma litla og foreldrum þeirra Deddu og Gumma,en þau voru með leikfangabúð á laugarveginum í nokkur ár sem heitir Liverpool,og hún er reyndar þar ennþá,eða ég held það Wink og ég ætla að reyna að hitta þau um næstu helgi ef ég hef tíma,það væri svooooo gaman,og mig hlakkar mjög mikið til, en hún fann mig hér bara fyrir tilviljun,þetta net og þessi bloggheimur er bara rosalega góður upp á svona hluti að gera,ef ég væri ekki að blogga hér,þá hefði þetta ekki átt sér stað,æði gæði..... Happy    

en annars þarf ég að blogga á átakið -dagbókin síðunni minni,og kveð hér á þessari síðu í bili, bæjó...Happy


Hvað verður það næst ??????

Það er aldeilis mikið að gera þessa dagana,núna í kvöld fórum við Hallgrímur með Örnu okkar á spítalann til vakthafandi læknis,hún datt niður af efri kojunni hans Gunnars og fékk þetta rosalega högg á leiðinni niður og svo beint á bert gólfið og gat ekki staðið upp vegna jafnvægistruflunnar,og var vönkuð og ranghvolfdi augunum og grét í heillangan tíma,þá sá ég stóóóra kúlu koma aftan á hnakkann og á vangann við hliðina á vinstra auganu,svo byrjaði hún að skjálfa og varð rosalega sifjuð og við áttum erfitt með að halda henni vakandi,ég hringdi í lækni alveg skíthrædd um að það væri eitthvað mjög alvarlegt að,hann bað okkur að koma með hana strax upp á spítalann og við vorum þar í um það bil klukkutíma,þar sem hún var skoðuð alveg bak og fyrir og leyfði henni að sofna í ca. 10 mín. og svo var hún vakinn,og viðbrögð hennar voru eins og þeir voru að vona,að hún færi að gráta og að hún vissi hvað hún vildi,á endanum fórum við með hana heim, smá saman kom hún til baka en var mjög listalítil,læknirinn fylgdist með henni í kvöld símleiðis með okkur og sagði okkur að hún gæti farið að æla en hún gerði það ekki,gáfum henni svo stíl fyrir svefninn og núna sefur hún og allt er í lagi..... hjúkkkkk..... við vorum svoooo hrædd um litlu prinsesuna okkar í kvöld Frown en allt er gott sem endar vel,og stiginn upp á kojuna var fjarlægður strax í kvöld,maður á aldrei að bíða þangað til að slysin gerast,þetta hefði getað farið verr,er búin að vera hrædd við þessa koju heillengi,ef þið eigið eftir að taka eitthvað frá sem þið eruð hrædd við vegna barnanna,gerið það þá strax,ég tel að við höfum bara verið heppinn í þetta skiptið...... veriði bless að sinni elskurnar...

Hlaupabólan mætt..... :(

Einmitt það sem ég sagði,um kvöldið á afmælisdaginn hans Gunnars uppgötvuðum við það að hlaupabólan væri byrjuð á bakinu á Gunnari og er heldur betur komin út um allann líkamann hans,í hársvörðinn,í augun,í eyrun og bara allsstaðar, og ógeðslegur kláði og pirringur,þetta er ömurleg veiki ég vorkenni honum svoooo mikið Errm en það er enginn hiti sem fylgir þessu hjá honum,og er bara nokkuð hress fyrir utan kláðann.

Svo á Arna eftir að fá hlaupabóluna,ég vona það að hún fái hana þá bara núna strax,eða þá bara eftir næstu helgi,svo að ég missi ekki af árshátíðinni 10 nóv. Shocking 

En annars á hún Berglind frænka afmæli í dag,til hamingju með daginn dúllan mín.... Wizard sjáumst vonandi hressar um næstu helgi þegar að ég kem með Gunnar í gistingu til Andra.

En ég er að vinna þessa helgina og er lítið í tölvunni þess á milli,vegna veikinda og kláða hjá syninum,þannig að þangað til næst,bless,kv. Dóra.


Annar dagur í afmæli :) 2 Nóvember..

7 ára  töffari.

Já og þá er það erfingi númer tvö,sem ég fæddi í þennan heim fyrir 7 árum síðan,og ekki kveið mig fyrir þeirri fæðingu,vegna þess að fæðinginn á undan var bara eðlileg og góð,en ég á tengdamömmu sem sagði mér það,að Hallgrímur hafi verið erfiður í heiminn vegna þess að hann var svo hausstór Hissa ó nei.... sem þýddi það að ég var með áhyggjur af hausstærðinni alla meðgönguna og þessi fæðing stóð yfir í  5-6 klst. sem er ekki langur tími,en þessi tími var mjöööögggg lengi að líða þarna,því að hann var auðvitað hausstór og var skakkur og stóð fastur,þannig að sogklukkan aðstoðaði mig í þessu brjálæði,gekk ekki í fyrstu tilraun en tókst í tilraun númer tvö... jibbbbííí...!!!! loksins..... og þessi drengur heitir Gunnar Blöndal og er nákvæmlega 7 árum og einum degi yngri en Guðrún systir sín Hlæjandi

ELSKU GUNNAR OKKAR,INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ 7 ÁRA AFMÆLIDAGINN ÞINN,NJÓTTU DAGSINS VEL OG LÁTTU OKKUR UM STJANIÐ VIÐ ÞIG Í DAG Ullandi KV. frá okkur hér heima....love you.... endalaust Hlæjandi

en hann var að hlaupa í skólanum í gær og rak fótinn í,með þeim afleiðingum að ein táin marðist illa og smá sprunga með,en hún brotnaði ekki og honum þykir betra að vera með hækjur,svona í bili,en hann var mjög spenntur að sjá myndirnar sem teknar voru í röngen,og fékk að sjá beinin,hann er duglegur að finna út hvernig best er að nota hækjurnar og er mjög jákvæður í alla staði með þetta allt,og ætlar samt sem áður að skemmta sér vel í veislunni sinni í dag,með hækjunum og öllu,en jæja ég verð að halda áfram við baksturinn ,fara svo í háttinn, vakna snemma og vekja hann með söng og pökkum..kv, Dóra.


Fyrsti dagur í afmæli :) 1 Nóvember..

skvísan dökkhærð :)

Já þá er fyrsta afmælisbarnið í dag, já og heil 14 ár síðan að ég fæddi minn fyrsta erfingja í þennan heim,og ég man fæðinguna eins vel í dag og hún hafi átt sér stað í gær Öskrandi jú auðvitað vont en hún gekk vel miða við fyrsta barn sögðu allir,nema ég...... þetta var bara alveg hræðilega vont og ég var heillengi að koma henni í heiminn... sagði ég,þangað til að ég hitti Siggu langömmu Guðrúnar Ástu,hún var í 36 klst. með sín börn,á meðan að ég var í 6 klst. með hana frá fyrstu verkjum, eftir það sagði ég alltaf að fæðingin hefði gengið mjög vel,og hef sagt það síðan Hlæjandi

EN ELSKU GUÐRÚN ÁSTA OKKAR, INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ 14 ÁRA AFMÆLISDAGINN ÞINN,OG NJÓTTU DAGSINS EINS VEL OG HÆGT ER,LÁTTU OKKUR UM ÞAÐ AÐ STJANA VIÐ ÞIG Í DAG Ullandi kv, frá okkur hér heima. love ya..... endalaust.........

Ég man líka eftir því fyrsta sem ég sagði þegar að ég fattaði hvaða afmælidag hún ætti,hún á sama afmælidag og Gugga vinkona,en hún er mín æskuvinkona,og líka mín fyrsta besta vinkona sem stóð með mér í einu og öllu og við brölluðum líka ýmislegt saman Hissa.

ELSKU GUGGA MÍN,INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN Í DAG OG NJÓTTU HANS VEL MÍN KÆRA,ÞÚ HEYRIR FRÁ MÉR Í DAG...LOVE YA.......

En þetta er eina málið á dagskrá hjá mér í dag,er farin í það að halda áfram að baka,og síðan vek ég´afmælisbarnið mitt í fyrramálið með söng og pökkum,kv. Dóra.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Í kaffi hjá Dóru...

Höfundur

Dóra Maggý

Dóra Maggý

Hér tala ég um allt milli himins og jarðar,ég á 4 börn og ég tala svolítið um þau líka,einnig eru áhugamálin mín (fyrir utan börnin ) komin í geymslu í bili en þau eru,ferðalög,góðar bækur, hafa gaman í góðra vina hópi,versla og fl. og fl. velkomin og njótið að lesa um mig og mín áhugamál

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Apríl 09 mamamía partý,k. 40 ára,snjókarl og fl 071
  • Apríl 09 mamamía partý,k. 40 ára,snjókarl og fl 030
  • Apríl 09 mamamía partý,k. 40 ára,snjókarl og fl 007

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband