Á bak við tjöldin.....

skvísan ég...

Já,það má nú með sanni segja að ég er ekki sú allra þolinmóðasta,ég verð bara alveg vitlaus ef hlutirnir ganga ekki strax upp,eins og með þessa síðu,mér gengur stundum svo illa að koma síðunni í það horf eins og ég vil hafa hana,sko ég og tækni eitthvað,smella stundum ekki saman,og ég gef mér oft ekki nógu góðan tíma,heldur gefst ég bara upp og hringi í Siggu mína,og segi HJÁLP !!!! og hún bjargar alltaf málunum fyrir mig...TAKK FYRIR HJÁLPINA SIGGA MÍN,NÚNA ER SÍÐAN EINS OG ÉG VIL HAFA HANA,TAKK,TAKK !!!!   Ullandi

En annars er helgin bara búin að vera róleg,og ég er bara nýkomin úr vinnunni,en vikan verður ekki jafn róleg hjá mér,börnin mín,Guðrún og Gunnar eiga afmæli núna 1 og 2 Nóvember,og þá verður maður að skella sér í bakstur,og veislu,það verður nú samt ekki nein veisla fyrir Guðrúnu,hún fer bara með vinum sínum út að borða á sinn afmælisdag ( 1 Nóv.) en fyrir Gunnar ( 2 Nóv.) verður afmælið haldið á Ólafshúsi og það verður pizzaveisla þar, og ég ætla að baka eina afmælisköku með,svona til að blása á kertin Hlæjandi og verð svo með smá kaffi hér heima á miðvikudagskvöldinu fyrir tengdó,þau nenna ekki að vera með í látunum,skil það mjög vel,ég myndi líka sleppa að vera með ef ég gæti það... hehehehe.... djók Svalur 

Svo ætla ég að halda áfram að safna gömlum myndum af okkur vinkonunum og vinunum og hafa sér albúm fyrir þær,ég er komin með nokkrar,en mig vantar fleyri,ef einhver á,viltu þá senda mér þær,ég á til dæmis engar myndir af mér á unglingsárunum,en ég á slatta af öðrum, vill einhver leita ????? plíssss.....  en allavega þá á ég eftir að blogga á átakið-dagbókinni minni,best að gera það snöggvast,sjáumst,kv. Dóra.


mamma orðin tölvunörd :)

mamma,Guðbjartur og Rósa.

Já nú verður maður að fara að vanda sig,fyrst mamma er farin að lesa bloggið mitt Hissa hún er farin að hringja í mig og spyrja,hvaaa, á ekkert að koma með nýtt blogg ????  ég sjálf : ha jú jú mamma mín,það kemur í kvöld ég lofa Glottandi  hahahhahaah.... hún er bara æði gæði hún mamma mín,ekki langt síðan að hún fékk sér adsl tengingu,og ég að hjálpa henni að komast inn á netið og á mitt blogg auðvitað,og núna rekur hún bara á eftir manni,hún verður fljót að verða háð tölvunni,eins og ég t.d. ég var heillengi að ákveða mig hvort mig langaði í tölvu,fannst þetta bara tóm bölvuð vitleysa, jú svo kom sá tími að blessuð talvan kom, og ég sagði við alla í fjölskyldunni að ég verð örugglega lang minnst í henni eða aldrei,því að ég ætlaði sko ekki að vera upptekin af einhverjari tölvu Gráðugur en ég er lang mest í tölvunni,og gæti ekki hugsað mér að vera án hennar,þannig að ég held að mamma verði fljót að vera alkjör tölvunörd eins og hún ég Ullandi en mamma til hamingju með það að vera komin í þennan elskulega tölvuheim Svalur

Annars er ég bara búin að vera eiga við minn elskulega ungling,og reyna að fá hana til að hjálpa við húsverkin,ég fékk hana að vísu til að ryksuga,á meðan að ég var að þurka af Öskrandi hún féllst á það með látum auðvitað,og gerði það með þungri brún,en hún gerði það þó,hvað er þetta með unglinga í dag,nenna þau ekki lengur að hreyfa sig ???? sko þau meiga ekki byrja að vinna of snemma,og ekki allt sumarið,svo byður maður þau um hjálp,nei... þá þarf maður að borga þeim fyrir, ég man eftir því að ég og Gugga vinkona fórum alltaf á fimmtudögum til Rósu frænku og hjálpuðum henni að þrífa og settum Smokie á fóninn og höfðum bara gaman af Hlæjandi en í dag vilja unglingarnir helst vera bara í tölvunni og nenna engu öðru,jú eða í símanum,já og bæði í einu,þetta er alls ekki eðlilegt,er að verða brjáluð á þessum ósköpum,en ég veit að ég á langt í land ennþá Öskrandi jæja ég er búin að blaðra frá mér allt vit,nenni þessu ekki lengur,bless þangað til næst,kv. tölvunördinn.

P.S. Elsku Gunna mín,til hamingju með afmælið í dag Hlæjandi njóttu dagsins...


Mér var bent á að.....

unglingurinn minn.

Já þetta óhapp mitt kom til tals hjá okkur Möggu í dag,og hún benti mér á það að blogga alltaf daginn eftir svona daga,vegna þess að fólk (semsagt þið ) gætuð farið að halda að eitthvað alvarlegra hafi komið upp á hjá mér,sem er auðvitað ekkert ósennilegt,maður gæti nú runnið til í hálkunnu,og ég kominn á spítalann,eða eitthvað annað,ég gæti vakið upp efasemdir um  það,hvort allt sé bara í lagi... eða ég myndi allavega hugsa það eftir svona daga hjá einhverjum ykkarÓákveðinn  en ég er auðvitað bara þannig,veit ekki með ykkur,en allavega,þá er ég í lagi,ef einhver vill vita það Svalur

en ég er búin að vera busy með minn elskulega ungling,sem er ekki að höndla unglingaveikina,er mjög skapstór,og þá er ekki gott að eiga skapstóra mömmu heldur,þannig að okkur gengur stundum ekki að tala saman í rólegheitunum,en erum góðar vinkonur þess á milli Hlæjandi en ég  auðvitað og við allar,þekkjum vondu tilfinningu að vera svo ofboðslega týnd á þessum aldri,vita ekki hvort við eigum að vera fullorðin eða börn,og reka okkur svo á það, að þegar að við ætlum sko að vera fullorðin og haga okkur þannig,þá verða forleldrar vitlausir við mann, vegna þess að þau eru auðvitað ekki komin með þroskan til þess, og þegar að maður ætlar bara að vera krakki,þá segja foreldrar það að maður sé nú orðin eldri en þetta ????? hvernig eiga þessum unglingum að líða,ég reyni eins og ég get að setja mig í hennar spor og muna eftir sjálfri mér sem unglingi,til að geta ráðið fram úr öllu þessu með henni á réttann hátt,og vísa henni á rétta braut.... sem sagt ekki brautina sem ég fór hahahah.... jú auðvitað þurfa allir að gera mistök til að læra af þeim,og hún má og hún á að gera mistök,og með mínu leyfi,svo lengi sem hún lærir af því,og hana nú..Tala af sér það er mín ósk.

En allavega þá er ég búin að vera heppin í dag,ég vann í Núinu í dag,og fékk 2 fyrir 1 á CARPE DIEM, og ég vann líka um daginn á Núinu, 2 fyrir 1 á MEKONG,  glæsilegt finnst mér,ég er að spá í að bjóða kallinum út að borða,helgina 10 Nov.  er ég ekki næs ???  en ég er að spá í að hætta núna og kveðja ykkur..... good by then,kv. Dóra.


Óheppnin eltir mig......

Já og með sanni sagt,þá gengur allt á afturfótunum hjá mér,ég er farin að halda það að ég sé fædd undir óheillstjörnu,sko ég má bara ekki koma við neinn einasta hlut án þess að hann eyðileggist.

Mp3 spilarinn minn er hættur að virka,ekki búin að eiga hann lengi Öskrandi,var búin að plana að fara út í kvöld með Röggu,á kaffihús eða í heimsókn til Möggu,nei nei.. þá var Guðrún beðin að passa annarsstaðar í kvöld,ég gat auðvitað ekki sagt nei við því,vegna þess að þá fær hún aukapening,Arna mín fór í bað í gærkveldi,og hún gjörsamlega gekk fram af mér,hún hvolfdi 2var sinnnum úr fullri fötu á gólfið og allt gjörsamlega á floti,skvetti líka svo mikið að ég þurfti að taka baðinnréttinguna og þurrka af henni allri Fýldur missti glas á gólfið í morgun með þeim afleiðingum að það kom stór sprunga á það og auðvitað beint í ruslið,viktin vill ekki niður hjá mér, ég er skítblaunk og fl. og fl. hvenær endar þetta og hvað er til ráða ???? getur einhver sagt mér það ?????

En ég vona bara að ég vinni í lottó fljótlega,þá gleymi ég þessu öllu strax !!!! LOFA...... Brosandi en ég ætla að fara að skrifa í átaksbloggið mitt,sjáumst,kv. óheillastjarnan..


Fór öfugt framúr í morgun :(

flottust.

Það er allt bókstaflega búið að ganga á afturfótunum í dag,ég byrjaði daginn á því að missa uppáhaldsa augnskuggann minn í gólfið og brjóta hann,svo missti í kaffið í gólfið,og gat ekki með nokkru móti haldið á einhverju án þess að missa það,eða næstum því... ekki nóg með það,þá náði frk. Arna að brjóta fyrir mér borðskraut,sem mér þótti mjög vænt um,og það er sko ekki allt búið ennSkömmustulegur svo reykjum við hjúin út í bílskúr,og þar er bíllinn geymdur,nema að ég fékk mér eina sígó,og setti helv.... pakkann á stuðarann,stuttu síðar fór Hallgrímur að skila videóspólunum sem við tókum í gær,nú auðvitað keyrði hann bara af stað og pakkinn með Öskrandi eftir að við föttuðum hvað orðið hafði af pakkanum,fór Hallgrímur af stað og labbaði þangað til að hann fann hann,sem var örlítið í burtu,nei nei,þá var búið að keyra yfir pakkann og kveikjarann og allt ónýtt,þurfti þá að strunsa út í búð rétt fyrir lokun og kaupa nýjan,eins og þetta er nú ódýrt eða hitt þó heldur Öskrandi þetta er sko ekki búið ennþá,nú ég á mér uppáhalds könnu með nafninu mínu á,þurfti ég ekki endilega að missa hann í vaskinn og haldið af.... sko hvers á ég að gjalda ??? Fýldur ég held að ég ætti bara að fara að sofa í hausinn á mér og það í hvelli,áður en eitthvað annað skemmist..... eða hvað haldið þið ??? vill einhver fá mig í heimsókn í kvöld?? he he he.... ég get örugglega  hjálpað eitthvað til Óákveðinn

en annars er bara ekkert annað að frétta af mér, allavega ekki í bili,vona bara að dagurinn á morgun verði eitthvað betri,jæja ég er þá farin burt frá tölvunni áður en ég skemmi hana líka Saklaus bless bless kv. Hrakfallabálkurinn mikli.....      P.S. Elsku Ægir okkar,til hamingju með afmælið í dag,og njóttu dagsins :)   ( Ægir er systursonur Hallgríms)


Er að verða brjáluð á ...........

Ég er búin að reyna og reyna að búa til nýtt albúm,og það kemur alltaf villa og vistast ekki Öskrandi er alveg komin á það að henda helv... tölvunni út um gluggann ,getur einhver sagt mér hvort þetta sé hjá ykkur öllum sem eru með þetta blogg,þessa dagana,eða er þetta bara hjá mér ????  og jú,hjá Siggu vinkonu er þetta svona líka Fýldur hvað er hægt að gera í þessu ????? Ég ætlaði að fara í það að setja fermingarmyndirnar af dóttur minni í sér albúm og sér fyrir vini og fjölskyldu og fleyra,en ekkert get ég gert.

En annars er bara vinnuhelgi framundan og Magni og co. koma og halda ball hér á Króknum í íþróttahúsinu,og mig langar svoooo ógislega mikið á ballið,en ég kemst það ekki vegna vinnu og peningaleysis Gráta ég er svo svekkt,en Ragga og Viktor ætla að fara,elsku dúllurnar mínar..... skemmtið ykkur vel og drekkið einn kaldan fyrir mig,plíssss..... Ullandi 

Ég var að enda við það að þrífa íbúðina mína,eins og venjulega fyrir helgina,og fór að huga að jólunum sem eru að koma,þá þarf maður að fara í það bráðlega að taka niður gardínur og  þvo, taka glerskápana og fínu glösin,upp á eldhússkápana og utan og að innan,skrifa jólakort og fl. og fl. alveg hellingur sem fer í undirbúning jólanna,sem er svo sem allt í lagi,nema þegar að maður er að hugsa það allt sem þarf að gera,verður maður svooo þreyttur,því að þetta er alveg hellingur sem þarf að gerast fyrir þennan yndislega tíma,en sumir eru nú farnir að sleppa öllum þessum þrifum,en ég vil það alls ekki,þetta er bara partur af stemminguni,eða allavega finnst mér það Hlæjandi eruð þið byrjuð á einhverju ????

en annars er ég að spá í það að hætta núna og kveikja á ilmkertum og reykelsi og njóta þess að hafa allt hreint á meðan að það endist og blessuð börnin sofa Glottandi bless í bili,kv. Dóran.


Hversu fullkomin þarf......???

 Já ég er að hneykslast á svo mörgu þessa dagana,til dæmis það,sem ein kona varð fyrir eftir sund með konu sem hún þekkir,ég ætla ekki að nefna nein nöfn,við erum að tala um konur á aldrinum 60-66 ára,en önnur konan kom bara ánægð út frá sundinu og fór þá hin konan að tala um hvað konan sem var með henni í sturtunni,hefði verið með svo sæta pjöllu,að henni langaði til að hennar pjalla væri svona flott...ojjjj....Öskrandi kommon stelpur,er þetta framtíðin,eru til konur sem fara í lýtaraðgerð á pjölluni ??? ,getur maður ekki lengur farið í sund,vegna þess að pjallan er kannski ekki alveg fullkominn,sko... sumir fara ekki í sund út af ljótum maga,of feitir eða lafandi og slitnum maga og ljótum rass og eða ljótum brjóstum,og mér finnst allt í lagi að laga þessa parta, en mig hefur aldrei dottið það í hug að þurfa að vera með pjölluna eitthvað sértaklega flotta,er framtíðin að verða þannig að fólk fari með pjölluna í lýtaraðgerð og fitusog og kannski strýpur eða pemanent líka,hahaha,nei maður spyr sig,hvað segið þið um þetta óhuggnalega mál,mér er ekki einu sinni vel við að skrifa um þetta mál hér,en ég bara gat ekki annað,ég er svooo hneyksluð.

Hversu fullkomin þarf pjallan að vera til að það þurfi lýtaraðgerð??? Óákveðinn    

En annars er bara gott að frétta af mér og mínum,sonur minn var reyndar að koma inn með gleraugun sín brotin,strákarnir voru í fótbolta og fór boltinn í andlitið á honum,þannig að þetta var alveg óvart,en núna þarf ég að fara og koma gleraugunum í póst og láta gera við þau... kv. Dóran   


Skiptinemar á Króknum.....

við mæðgurnar.

Ég verð alltaf jafn hissa á Íslendingum,þegar að útlendingar eru annars vegar,alltaf er allt gert fyrir útlendinga hér á Íslandi,eins og ég komst að t.d. í vinnunni minni í kvöld,skiptinemar hér á króknum fá frítt í sund.... af hverju??? og af hverju þá ekki´Íslenskir nemendur ???? ég var svoo hissa á þessu í kvöld að ég átti ekki til eitt einasta aukatekið orð,ekki það að ég sé eitthvað á móti útlendingum og svo langt frá því,en svo eignast skiptinemi Íslenskan vin og fara saman í sund,nei heyrðu,þú þarna Íslendingur,þú þarft að borga en ekki skiptineminn,af hverju ekki???? ég verð oft svo reið yfir þessu,við í okkar eigin landi Öskrandi eruð þið ekki sammála mér ????? ég er sjálf hálfur Norðmaður,og ég hef eignast marga útlendinga sem vini,og ég á stóra fjölskyldu í Noregi,þannig að ég hef enga andúð á útlendingum,og þeir eru sko alveg velkomnir til okkar lands fyrir mér,en væri ekki allt í lagi að koma vel fram við okkar fólk líka,ég meina, að Íslenskir nemendur eiga ekkert meira af peningum en skiptinemarnir....  jæja, þá er ég búin að fá mína útrás yfir þessi óréttlæti,og ég mun aldrei kalla þetta neitt annað en ÓRÉTTLÆTI VIÐ ÍSLENSKA NEMENDUR....  og hana nú Óákveðinn

En annrs er unglingurinn minn komin heim aftur Hlæjandi alltaf svooo gott að hafa þau öll hjá sér í einu,en dúllan mín hjálpaði mér með að setja lög inn á mp3 spilarann minn,þannig að ég get byrjað fyrir alvöru á morgun á brettinu mínu góða,jibbíííí.... takk elsku Guðrún mín með þetta allt saman Svalur love ya....   en núna er ég að spá í það að koma mér í háttinn,svo að ég vakni nú á réttum tíma í fyrramálið til að koma krökkunum í skólann,kv. ekki sátta gellan....


Til hvers að þrífa ???

Arna beib.
Ég bara spyr??? maður þrífur og gerir allt ægilega flott og fínt,verður alveg extra hamingjusamur með heimilið sitt,svo fara blessuð börnin að leika sér og maður pirrast yfir dótinu og poppinu á laugardagskvöldum,og maður spyr sig alltaf aftur og aftur,til hvers var ég að leggja mig fram við það að þrífa og gera allt flott,þegar að það sést ekki hálfum degi eftir,ég meina það,maður rétt snýr sér við,þá er allt komið út um allt aftur Gráta ég er alveg að komast á þá skoðun að hætta að þrífa,þá ættu allir vera hamingjusamir..nema kannski ég????  ég held að ég gæti ekki sleppt því lengi,þá yrði ég bara óþolandi mamma og unnusta,vegna þess að ég verð ógeðslega pirruð ef allt er í óreglu á heimilinu,þannig að þetta verður bara að halda áfram að vera sagan endalausa..... held ég barasta?????    jæja þá er ég búin að pústa um málið og mér líður svo miklu betur Brosandi  en eruð þið ekki sammála mér ????     kæru vinir,þetta var blogg dagsins,kem aftur eftir vinnu annað kvöld,kv. þrifnaðargellan mikla....

Góðan daginn öllsömul !!!!

Nýja borðstofusettið.

 Jæja, þá er ég komin aftur frá henni Reykjavíkinni,þar tók Berglind á móti mér og við brunuðum auðvitað beint í Íkea og í rúmfatalagerinn og skoðuðum borðstofusettið sem ég ætlaði að kaupa,en alls ekki líkt því sem ég sá á netinu,mér fannst bara ekkert varið í það,þannig að við fórum í Míru og þar fann ég sko settið,gegnheilt Indverskt borstofusett með 6 stólum á 2000 kr. ódýrara, eða á 57.000 kr. en það átti að kosta 137.000 kr. en við Hallgrímur komum með það heim og settum það upp aðfaranótt fimmtudags og sem betur fer,því að það voru 3 föst skóför á borðinu og illa unnið líka,þannig að við þurftum að taka það saman og Hallgrímur tók það með sér aftur suður og skipti,en núna er komið annað borð og án galla Hlæjandi en það er alveg hefí þungt.

En við Berglind og Sigga byrjuðum stelpudaginn snemma og vorum komnar í kringluna um klukkan hálf tólf og ætluðum að setja litla stírið mitt í pössun,en þar opnaði ekki fyrr en klukkan 14:00 Óákveðinn en við fórum nú samt í Hagkaup og ég fékk þennan fína útigalla á Örnu og lambúshettu úr flís í 66° norður.og auðvitað í ikea og þar fann ég geggjaða diska (hversdags)  þeir eru sko ferkanntaðir,en ég hafði ekki efni á þeim líka,en mamma ætlar að gefa okkur þá í jólagjöf ásamt 6 súpuskálum í stíl,ef það tekst,því að það er ekkert smá erfitt að fá að kaupa símleiðis Óákveðinn enduðum á kaffihúsi í smáralindinni og stelpan í pössun,þar fengum við okkur væna caloríubombu og alveg helling af kaffi sem kom auðvitað niur á Berglindi,því að hún komst ekki með okkur á kaffihús eftir bíóið um kvöldið Fýldur  en við 3 stöllur (Sigga,ég og Gugga) fórum á Viktor eftir bíóið og skemmtum okkur bara vel og þar var mikið spjallað hehehehe.... myndin sem við fórum á heitir Step up,hún er mjög sæt mynd en það voru ekki allir að fíla hana.

En við Arna gistum hjá Vigdísi mágkonu og fengu þær sitt frænkukvöld og takk fyrir okkur,ég keypti mér auðvitað 2 skó hjá henni,ein stigvél og eina hversdagsskó,en hún er að selja föt frá friendtex,nýji listinn hjá þeim er alveg ógislega flottur,Vigdís ætlar að koma eina helgi hingað á krókinn fyrir jólinn og halda kynningu hjá mér ,ef einhver hefur áhuga Tala af sér komið endilega til mín og verslið feitt hehehehe....  svo enduðum við Arna ferðina á því að fara til Dísu ömmu (tengdó) og drusluðum henni með okkur í bónus og í ikea,þar tók Arna mín stórt kast,sem er ekkert óeðlilegt,því þau geta bara ekki verið inn í svona búðum og það var lokað í boltalandi,enda var þetta síðasti dagurinn á þessum stað....brjálað að gera !!!!   en ég held að ég sé búin að segja ykkur allt frá Reykjavíkinni,nema það að ég sá litla ömmustírið hennar Siggu, og hún er alveg yndisleg, falleg lítil rófa og Sigga fékk smá æfingu frá henni  Örnu minni,, hehehehe.....  en þetta er komið gott í bili og kveð núna,kv. Dóra M.   P.S. ég er búin að kaupa mér mp3 spilarann jibbbííí...


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Í kaffi hjá Dóru...

Höfundur

Dóra Maggý

Dóra Maggý

Hér tala ég um allt milli himins og jarðar,ég á 4 börn og ég tala svolítið um þau líka,einnig eru áhugamálin mín (fyrir utan börnin ) komin í geymslu í bili en þau eru,ferðalög,góðar bækur, hafa gaman í góðra vina hópi,versla og fl. og fl. velkomin og njótið að lesa um mig og mín áhugamál

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Apríl 09 mamamía partý,k. 40 ára,snjókarl og fl 071
  • Apríl 09 mamamía partý,k. 40 ára,snjókarl og fl 030
  • Apríl 09 mamamía partý,k. 40 ára,snjókarl og fl 007

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband