Færsluflokkur: Bloggar

Sónar og fleira.... :)

það var sko gaman sögðu krakkarnir !!!  og það var svo gaman að sjá á þeim svipinn þegar að þau áttuðu sig á hlutunum,hvað væri hvað og svo framvegis,nema Gunnar hafði miklar áhyggjur af því að það væri ekkert ljós hjá barninu,og vildi helst setja eitt stikki ljósaperu inn til barnsins ojojoj.... hehehehe..... ekki góð hugmynd !!! Crying en allt gekk þetta vel og allt á sínum stað og sónarinn segir að barnið komi þann 29 Júlí.... eða ég myndi segja,þar fór verslunarmannahelginn,ég er alveg viss um að ég muni eiga þá,ég fer alltaf eitthvað framyfir,þannig að þeir sem ætla að heimsækja mig á spítalann skulu bara vera sem næst mér og ekkert helv... fyllerí Tounge  góður !!!   

Jú og við skruppum auðvitað suður til að fá gleraugu á prinsessuna,og við fundum þessi fínu bleiksannseruðu gleraugu með góðu haldi fyrir aftan eyrun,en þau kostuðu sko sitt,eða 23.000 kr. með öllu,ekkert smá dýrt.....  en svona er þetta bara GetLost  en í dag áttu tveir töffarar afmæli ,annar varð eins árs og hinn varð 65 ára.

ELSKU PABBI MINN,INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ 65 ÁRA  AFMÆLIÐ Í DAG,NJÓTTU HANS EINS OG HÆGT ER,en hann er á spítala og getur því ekki haldið neina veislu. VIÐ ELSKUM ÞIG OG FARÐU VEL MEÐ ÞIG,   fyrir þá sem mig ekki þekkja,þá býr pabbi í Noregi,því get ég ekki farið og knúsað hann,ég söng bara fyrir hann í staðinn Whistling  Hallgrímur,pabbi og Svenni.

svo er það hann Grétar Jóhannes okkar (Jói litli) INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ EINS ÁRS AFMÆLISDAGINN ÞINN OG NJÓTTU HANS VEL. Wizard love you...Jói litli :)

En annars er Hallgrímur búin að vera með pestina síðan á miðvikudag,en er farin aftur til vinnu,en ég er núna að taka við,hnerr hnerr og aftur hnerrr...   ógeð !!!!  þannig að ég segi nú bara bless í bili og passið ykkur á pestinni Undecided 


Á leiðinni suður !!

Ég er á leiðinni suður með skvísuna til að fá á hana gleraugu og finna einhverja sæta leppa fyrir augað,jú og auðvitað á að kíkja í babysam og ólivíu og óliver og skoða vagna handa litla krílinu Tounge en í fyrramálið förum við Hallgrímur,Guðrún og Gunnar í sónar,það verður gaman að leyfa þeim að sjá og vera með,en okkur hlakka auðvitað mikið til og við erum að spá í það að hafa kynið bara út af fyrir okkur í þetta sinn,en ég fer bráðum í það að opna bumbusíðu og þar set ég svo sónarmyndirnar inn og nýjar bumbumyndir í hverjum mánuði. úfffff, það verður brjálað að gera í barnasíðum á barnalandi.börnin að skreyta afmæliskökuna mína :)

Afmælisdagurinn minn var bara mjög skemmtilegur þrátt fyrir vinnu,fyrst kom Kristín,svo komu Ragga,Ísak og Viktor( eftir að þeir voru búnir að hringja í mig og syngja fyrir mig afmælissönginn) ekkert smá flott,takk fyrir dúllurnar mínar :) en þau færðu mér pakka sem einnig var frá Möggu og co. og í pakkanum voru tvær uppáhaldsmyndirnar minar prettý women og Dirtý Dancing,ekkert smá skemmtilegt og takk  fyrir mig Grin svo fékk ég hálsmen og eyrnalokka frá pabba og Berit,eyrnalokka og hálsmen og ilmvatn frá Rósu og Guðbjarti,ilmvatn og náttföt frá mömmu,blóm frá Olgu og Rolando,blóm frá tengdó hér,eftirrétti Hagkaupa frá Dísu tengdó,svo á ég eftir að velja mér úr frá Hallgrími og börnunum, takk æðislega fyrir mig allir !!!!  jæja þá er ég farin suður og Dóran kveður að sinni,knús......    

P.S. takk fyrir kveðjurnar á afmælidaginn minn allir !!!!


Kellan orðin 35 ára !! :)

omg !!!!! ég er bara ekki að ná því og mér finnst það svolítið skerí,sko.... mér fannst erfitt og asnarlegt að verða 30 ára,en mér líður einhvernveginn ennþá verr í dag,ég nálgast óðum 40 árin nei nei nei !!!!! en þetta er í lagi á meðan að maður er ungur í anda og ber á sig yngingarkrem og svoleiðis..... hehehehe..... not !!!! ég þarf nú ekkert svoleiðis Tounge eða er það ????

En ég og Berglind vorum að rifja upp í dag 25 ára afmælið mitt á Reynigrund 23 í kópavogi,þegar að við Berglind og Hafrún bjuggum saman,þá héldum við rosa partý handa mér og akkúrat núna eru nákvæmlega 10 ár síðan að við vorum í smökkun á  bollunni sem við hönnuðum í veisluna og vorum komnar heldur betur á rassgatið og enduðum á kíwíbollu sem var algjört gúmmulaði,svo höfðum við dúk á borðinu í veislunni þar sem gestir gátu skrifað hvað sem þeim datt í hug,það kom margt skemmtilegt út úr því,ég ætla að láta eina vísu sem Jökull vinur minn spann upp í partýinu,sem er bara ekki hægt að gleyma,og við Berglind rifjuðum hana upp í dag,og svona er hún.....flottastar !!!!

 If I was a bird

I wood fly in the sky

but I dont

so I wont.

hahahaha..... þetta er bara snilld hjá Jökli vini mínum,ég mun aldrei gleyma þessu. Wizard en það verður ekkert partý þetta afmælið vegna óléttu minnar,þannig að kannski geri ég eitthvað sniðugt á 36 eða 37 ára afmælinu mínu í staðin,en við Guðrún vorum að baka skúffuköku til að eiga klukkan 10:30 í fyrramálið fyrir Kristínu vinkonu,en ég fer svo bara í vinnuna á morgun og alla helgina,þannig að ég held að þessi afmælisdagur verði bara næstum eins og hver annar dagur,kallinn að vinna fram á kvöld Crying ekki er á allt kosið,en núna ætla ég að leggja mig og vakna snemma til að taka upp pakka og taka á móti Kristínu vinkonu,blómvendir eru vinsamlegst afþakkaðir en í staðin vil ég fá kvitt... takk takk..... love Grin


Augnlæknirinn í dag !!

Jú við fórum til auglæknisins í morgun með prinsessuna og úr því kom að hún er ekki með lömun í augnvöfðunum jibbííí !!! en hún er samt mjög fjarsýn eða 4,25 í + og 1,0 í augnskekkju á hægra en á því vinstra er það ca. 4,0 í + og 0,87 í augnskekkju, sem þýðir að hún byrjar í leppmeðferð á morgun og við förum með hana suður í næstu viku til að velja gleraugu og hún þarf að vera með þau alveg en leppinn fer yfir vinstra augað til að þjálfa það hægra í 5-6 klukkutíma á dag 6 daga vikunnar,ef við gerum þetta ekki þá getur hún  nánast misst sjónina á því hægra.... sjokk !!! hann telur að hún hafi orðið fyrir áfalli við höggið niður kojuna en að þetta hafi samt alltaf verið til staðar að hún sjái illa,en við fallið hafi hún ósjálfrátt misst stjórn á hægra auganu,sem var í rauninni mjög algengt hér árum áður hjá börnum sem fengu erfiða sjúkdóma já og eða orðið fyrir höggi.  En við verðum bara að vera bjartsýn og gera okkar besta,ég blogga meira eftir miðnætti......

Öskudagurinn !!

Jæja loksins komst ég inn,það er búið að vera þvílíkt vesen að komast inn á síðuna til að blogga,en vegna nýrrara uppfærslu hjá blog.is og mistaka vegna lykilorða hjá notendum blog.is,þá er maður búin að vera að bíða og bíða eftir svari hjá þeim og svo loksins fékk maður svarið og lausnina til að getað bloggað til ykkar,og enn og aftur þá kom hún Sigga mín til sögunnar og hjálpaði mér með þetta allt saman,þú ert ómissandi mín kæra... takk takk !!!!!  InLove

En svo að við snúum okkar að deginum í dag,þá byrjaði ég á því að fara með Örnu í leikskólann á grímuball og Gunnar í árvist til að syngja með krökkunum í fyrirtækjunum í morgun og allt gekk þetta vel og Gunnar kom með fullann poka af sælgæti heim til okkar og hélt okkur veislu... æði !!!! Gunnar leikur svarthöfða í dag og Arna beib leikur ljón.... ægilega flott... myndir verða settar inn á síðurnar þeirra á barnalandi Smile

Ég er nú samt vön því að það sé maskað á bolludagskvöld í heimahús  heima á Ísafirði og ég á rosalega erfitt með að venjast þessum sið,og líka að krakkarnir mínir missi af þeim siði,en svona er þetta bara.......Picture 027

En núna er ég loksins búin að fá símtal frá lækninum okkar varðandi Örnu,og hann er bún að vera kanna afleiðingar svona falla og kanna hvort þetta geti átt sér stað og er búin að tala við einhverja taugasérfæðinga og augnsérfræðinga og þeir telja að augntaugar  og sem aðrar taugar geti skemmst eða skaddast við svona högg,þannig að núna er önnur bið eftir öðrum lækni til að fá tíma í ómskoðun á höfðinu á henni,hún verður sem sagt svæfð á meðan að hún er inni í tækinu, en við álítum að þetta sé kannað til öryggis auðvitað,líka upp á það að hún þarf að fara í augnaðgerð,og ég vil ekki að hún sé framkvæmd fyrr en ég er alveg viss um að það sé málið,því að þetta augnferli er alveg stórfurðulegt,og það sem meira er,að hún er líka farin að missa jafnvægið og þær á leikskólanum hennar eru líka búnar taka eftir þessum svakalegu breytingum á stuttum tíma,þannig að ég er ekki móðursjúk,sem væri eiginlega gott í þetta skiptið.... Wink 

núna er ég að fara með Gunnar niðrí íþróttahús og slá köttinn úr tunnunni og fleyra fjör..... svona til gamans þá fékk ég hárkolluna hennar Guðrúnar lánaða og geislasverðið hans Gunnars og tók mynd af mér,og þið sjáið útkomuna hér á myndinnni sem fylgir hehehehe..... 


Sit hér að hlusta á.......

Pictureöll gömlu lögin sem hún Berglind mín tók upp fyrir mig á 6 diska og gaf mér, takk takk takk !!!! þetta eru æðisleg lög og þau bera mann sko til unglingsáranna,þegar að allt var svooo skemmtilegt og við í fullu fjöri,jú og stundum auðvitað var það líka erfitt Cool en ég hitti líka hana Hafrúnu mína hjá Berglindi og sá loksins Magnús Mána,yngri strákinn hennar,en þetta var í fyrsta sinn sem ég hitti hann,en ég var auðvitað búin að sjá myndir af honum,en hann er alkjört krútt og ég er alveg heilluð af honum,þið komuð mér svo sannarlega á óvart og takk fyrir það dúllurnar mínar Tounge

En annars er bara gott að frétta,en ég hef ekkert heyrt meira frá lækninum en ég ætla að gefa honum tíma til næsta mánudags,annars hringi ég bara aftur í hann,og hana nú.......

Jú hún Guðrún mín tók bumbumynd af mér í dag og á henni er ég komin 16 vikur á leið,og ég er aðeins farin að finna fyrir hreyfingum,sem er æðislegt mér finnst alltaf fyrstu 4 mánuðirnir vera leiðinlegastir,maður finnur ekkert,stækkar bara og stækkar og líður eins og maður hafi fitnað helling,svo byrjar það skemmtilega og alveg þangað til að 2 vikur eru eftir þá er manni farið að langa að klára bara dæmið,alveg sama hversu sárt það er,sem er alveg geggjað því að mér kvíður alltaf fyrir fæðingunni alla meðgönguna,en í restina er manni svoooo sama,bara að fá krílið í hendurnar hehehe...... við erum svoo ótrúlegar og líka svooo frábærar InLove er það ekki ????

en annars er ég að spá í að koma bumbumyndinn hér að og Dóra kveður að sinni.......


Um síðustu helgi.....

Fórum við fjölskyldan til Reykjavíkur til að versla föt á bumbulínu og keyptum líka afmælisgjöfina hennar Örnu frá okkur,og fengum við handa henni borð og 2 stóla í herbergið hennar og hillusett í stíl,hún er alveg rosalega ánægð með þetta allt og dundar sér nú helling við að púsla latabæjarpúsluspilið sitt og hlustar á músik,ægilega dugleg Tounge

Jú og auðvitað fór ég í tvö líf og fékk mér óléttuföt sem var orðið heldur betur þarfaþing,endaði að vísu 21 þúsundum fátækari í staðin,en lít líka betur út í flottari fötum hehehe.... 

Við lentum í flottu og ógislega góðu fjölskyldumatarboði að hætti Vigdísar mágkonu,ekkert smá góður matur á laugardagskvöldinu,og fór svo í heimsókn til Vallýar vinkonu og töluðum þar og möluðum fram á nótt,enda ekki búnar að hittast í marga marga mánuði Grin 

Eftir gott spjall við flesta úr fjölskyldum okkar höfum við komist að því að kannski eru augun á henni Örnu svona eftir að hún datt úr kojunni hjá Gunnari,við erum mikið búin að vera að spá í þetta og ég er búin að tékka á barnalandssíðunni hennar fyrir og eftir 4 nóv. þegar að slysið átti sér stað að augun í henni fóru að vera svona eftir að hún datt út úr kojunni,enda var þetta ekkert smá högg,og ég er búin að tala við læknirinn sem tók á móti henni og hann er skoða þetta,núna er ég bara að bíða eftir því að hann hringi aftur í mig og sjá svo hvort hægt sé að láta hana í sneiðmyndatöku og kanna hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis í fallinu,þannig að við bara bíðum og sjáum hvernig þetta fer,en annars er ég að vinna þessa helgina og blogga bara meira eftir helgi,og þá kannski kem ég með eina bumbumynd,en þangað til hafið það gott...... Smile


ojojoj..... !!!!!! :(

Ekkert smá fúlt að tapa fyrir Dönunum eftir allann þennan gífurlegan spenning,ég var komin upp á sófasettið og gríslingarnir með,en svona er þetta bara og þá er bara að berjast fyrir fimmta sætinu,sem er nú ekkert svo agalegt,við höfum aldrei komist svona langt enda eru þeir strákarnir okkar núna,þrátt fyrir 5 sætið,er það ekki bara ????  Áfram Ísland !!!!!!Grin

Rannsakaði málið betur !

Og ég komst að því að það er augnskekkja í fjölskyldunni hjá Hallgrími,bæði systir hans og hjá mömmu hans,þannig að þetta er ættgengt í hans ætt ekki minni hehe... þann er sko sökudólgurinn Blush æjæj.... djók !!  en þetta lagast með hjálp augnasnillinga,eins og ég sagði í fyrra bloggi,þá gæti þetta verið verra,en fyrir utan þetta augnvesen,þá er bara allt gott að frétta og ég stækka og stækka,ég veit bara ekki hvert ég stefni ef ég held svona áfram,en ljósa sagði mér að hafa engar áhyggjur,ég væri búin að eiga 3 börn og teyjan er orðin slakari og að ég gæti svo staðið bara í stað í þónokkurn tíma Wink VONANDI !!!  

 en ég horfði auðvitað á evróvísíon á laugardaginn,mér finnst lögin alltaf verða verri og verri með árunum,en samt fannst mér lagið með Eiríki Hauks standa uppi af öllum lögunum sem komið hafa fram,svo er Eiríkur bara alltaf jafn góður,sama hvaða lag hann tekur,það er allavega mín skoðun Tounge 

Ég er núna þessa dagana að taka bleyjuna af Örnu á nóttinni og var hún bleyjulaus síðustu nótt,en hún pissaði einu sinni undir,enda er ekki við öðru að búast,spurningin er bara,hvað margar nætur gerir hún það ???    framahald síðar........ 

Mig langar svooo mikið til að eiga peninga í janúar,og komast á útsöluna hjá tekk kompaní,þeir voru að selja tungusófa,sem kostaði fyrir útsölu rúmlega 200 þúsund kr. á núna á útsölunni 60-70 þúsund kr. vá !!!! dem hvað það er óþolandi að vera blankur í janúar,ég ætla að safna mér janúarspeningum fyrir næsta janúar W00t

en núna er ég að spá í að hætta þessu bulli og horfa á O.C. með Hallgrími og koma mér í háttinn

SJÁUMST !!!!!

 


Augnlæknirinn ....

Við Hallgrímur fórum með Örnu til augnslæknis í dag,og út úr því kom að hún þarf væntanlega að fara í augnaðgerð,ganga með gleraugu og leppmeðferð,því augu hennar eru 10 gráður í skekkju,sem þýðir að hún sér pottþétt illa líka,og að annað augað er alveg skakkt og hægra augað er letiauga,það þarf að færa til augað sem er skakkt,því hún er alveg að verða rangeygð.

Það er ekki langt síðan að ég fór að taka eftir þessu,síðan þá hefur þetta versnað og versnað  og þær á leikskólanum tóku líka bara allt í einu eftir þessum breytingum,en samt er enginn úr minni fjölskyldu með þetta sem barn og ekki úr Hallgríms fjölskyldu heldur,ég er alla ekki að skilja hvaðan Gunnar og Arna fá þetta,ég hefði haldið að þetta væri ættgengt,en svo er ekki,ekki er Guðrún Ásta með þetta heldur.... Wink ég skil þetta ekki....

En maður má samt vera þakklátur fyrir það,að þetta er samt eitthvað sem hægt er að laga,þetta gæti verið verra,þannig að við hættum þessu væli og verum jákvæð og gerum okkar besta.  Hallgrímur fer hugsalega í leiseraugnaðgerð til að losna við gleraugun,það er frábært að eiga þennan möguleika,þessi aðgerð kostar 300 þúsund,og stéttafélagið tekur þátt og borgar 25 þúsund á augað.    En ég er að vinna alla helgina og ég skrifa meira eftir helgina.....  Góða helgi Grin


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Í kaffi hjá Dóru...

Höfundur

Dóra Maggý

Dóra Maggý

Hér tala ég um allt milli himins og jarðar,ég á 4 börn og ég tala svolítið um þau líka,einnig eru áhugamálin mín (fyrir utan börnin ) komin í geymslu í bili en þau eru,ferðalög,góðar bækur, hafa gaman í góðra vina hópi,versla og fl. og fl. velkomin og njótið að lesa um mig og mín áhugamál

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Apríl 09 mamamía partý,k. 40 ára,snjókarl og fl 071
  • Apríl 09 mamamía partý,k. 40 ára,snjókarl og fl 030
  • Apríl 09 mamamía partý,k. 40 ára,snjókarl og fl 007

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband