Annar dagur í afmæli :) 2 Nóvember..

7 ára  töffari.

Já og þá er það erfingi númer tvö,sem ég fæddi í þennan heim fyrir 7 árum síðan,og ekki kveið mig fyrir þeirri fæðingu,vegna þess að fæðinginn á undan var bara eðlileg og góð,en ég á tengdamömmu sem sagði mér það,að Hallgrímur hafi verið erfiður í heiminn vegna þess að hann var svo hausstór Hissa ó nei.... sem þýddi það að ég var með áhyggjur af hausstærðinni alla meðgönguna og þessi fæðing stóð yfir í  5-6 klst. sem er ekki langur tími,en þessi tími var mjöööögggg lengi að líða þarna,því að hann var auðvitað hausstór og var skakkur og stóð fastur,þannig að sogklukkan aðstoðaði mig í þessu brjálæði,gekk ekki í fyrstu tilraun en tókst í tilraun númer tvö... jibbbbííí...!!!! loksins..... og þessi drengur heitir Gunnar Blöndal og er nákvæmlega 7 árum og einum degi yngri en Guðrún systir sín Hlæjandi

ELSKU GUNNAR OKKAR,INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ 7 ÁRA AFMÆLIDAGINN ÞINN,NJÓTTU DAGSINS VEL OG LÁTTU OKKUR UM STJANIÐ VIÐ ÞIG Í DAG Ullandi KV. frá okkur hér heima....love you.... endalaust Hlæjandi

en hann var að hlaupa í skólanum í gær og rak fótinn í,með þeim afleiðingum að ein táin marðist illa og smá sprunga með,en hún brotnaði ekki og honum þykir betra að vera með hækjur,svona í bili,en hann var mjög spenntur að sjá myndirnar sem teknar voru í röngen,og fékk að sjá beinin,hann er duglegur að finna út hvernig best er að nota hækjurnar og er mjög jákvæður í alla staði með þetta allt,og ætlar samt sem áður að skemmta sér vel í veislunni sinni í dag,með hækjunum og öllu,en jæja ég verð að halda áfram við baksturinn ,fara svo í háttinn, vakna snemma og vekja hann með söng og pökkum..kv, Dóra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: The suburbian

Hellú darling og til hamingju með drenginn. Andri býður spenntur eftir að fá frænda sinn og vin í heimsókn og gistingu svo, nú er bara beðið eftir kappanum :o) Kveðja, frænkan í borginni.

The suburbian, 2.11.2006 kl. 15:15

2 identicon

Innilega til hamingju með einkasoninn sæta.

Gaua 2.11.2006 kl. 16:34

3 identicon

Til hamingju með öll börnin og afmælin ;O) og takk fyrir kvittið hjá mér um daginn, ég var lengi að fatta þetta Dóra frænku tal þitt ;O) ha ha ha ha... en já netið og bloggsíðurnar eru yndislegar, þá fær maður fréttir af brottfluttum vestfirðingum og gömlum vinkonum...

Gangi þér vel skvís...sýnist þér nú ganga vel og er stolt af dugnaðinum í þér..

Kv.Harpa Hall

Harpa Hall 2.11.2006 kl. 19:08

4 Smámynd: Dóra Maggý

takk, takk fyrir að muna eftir börnunum mínum kæru vinir,já og Harpa ! þetta net og blogg er bara ágætis heimur til að fylgjast með.....  bæjó kæru vinir

Dóra Maggý, 2.11.2006 kl. 22:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Í kaffi hjá Dóru...

Höfundur

Dóra Maggý

Dóra Maggý

Hér tala ég um allt milli himins og jarðar,ég á 4 börn og ég tala svolítið um þau líka,einnig eru áhugamálin mín (fyrir utan börnin ) komin í geymslu í bili en þau eru,ferðalög,góðar bækur, hafa gaman í góðra vina hópi,versla og fl. og fl. velkomin og njótið að lesa um mig og mín áhugamál

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Apríl 09 mamamía partý,k. 40 ára,snjókarl og fl 071
  • Apríl 09 mamamía partý,k. 40 ára,snjókarl og fl 030
  • Apríl 09 mamamía partý,k. 40 ára,snjókarl og fl 007

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband