ýmislegt brallað :)

Jú jú þó að það sé nokkuð að gera bara hér heima,þá fór maður auðvitað með börnin á sýningar hjá Guðrúnu Ástu og Gunnari og tók því Örnu mína með og höfðum við gaman af því,bæði leikritin voru mjög skemmtileg,Guðrún lék í Skilaboðaskjóðunni og þar lék hún úlfinn og fór hún alveg á kostum og mætti þar mikilli lukku á meðal áhorfenda,og sumir segja að hún sé Helga Braga 2,sel það ekki dýrara en ég keypti það Grin og hennar starfssvið í lífinu að mínu mati og annarra er að hún ætti að nýta sér þennan hæfileika og fara í leiklistina,þar á hún heima.... en Gunnar lék Jón í leikritinu Sámur blundar,það var líka mjög skemmtilegt og við skemmtum okkur alveg konunglega,hann er nú samt ekki nema 8 ára og ekki fullséð hvernig þetta verður með hann uppi á sviðinu,of snemmt að spá um það,en bæði leikritin voru frábær og við Arna vorum hæstánægðar með þetta allt saman LoL 

En nú líður að ferðalaginu ( 13 maí ) hennar Guðúnar með skólanum til Danmörk og verður hún þar í 5 daga,ég verð að viðurkenna það að mig kvíður svolítið fyrir því að senda hana svona án mín út fyrir landssteinanna, þó að ég treysti alveg þeim kennurum sem með hópinn fara,en ég verð nú bara að krossa putta og vona það besta Tounge ég vona bara að hún verði til sóma og skemmti sér bara vel,þetta er semsagt 10 ára afmælisferð og er víst gert meira í þessari ferð en í öðrum ferðum... gaman gaman....  

Ég hef ekki farið aftur á viktina og ætla ekki að fara nema einu sinni í viku og mér þykir það bara alveg nóg,annars verður maður bara þreyttur á þessu og þið vitið.. þetta á nottla bara að gerast allt í hvelli FootinMouth hehehe... eða þannig viljum við hafa það....  

ég fór í dótabúð um daginn,sem ég geri nú kannski stundum en það var búð að hætta hér og fór ég á rímingasöluna og keypti einhver dót handa ungunum á ógisslega góðu verði hehehe.... en ég var alveg að verða brjáluð yfir því að ná helv... dótinu úr dótakössunum,sko maður þarf að hafa skrúfjárn og vera lipur í höndunum og til að nenna að ná dótinu úr kössunum,þetta pirrar mig ekkert smá... maður á semsagt ekki að geta stolið dótinu úr kössunum.. það er sko alveg á heynu...Devil

en allavega þá er ég bara langtkomin fram yfir minn háttatíma og er orðin frekar sibbinn.. látið ykkur líða vel og stórt knússss.. kv. Dóran HeartGunnar minn með afróflétturnar sínar :)   Gunnar minn kominn með afróflétturnar sínar...ekkert smá flottur Grinapríl 2008 032


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda litla

Sjá þessar krúttmyndir af Gunnari, hann er orðin svo stór og með mikið hár..... dúllan.

Það er frábært að finna eitthvað sem unglingurinn er góður í, frábært hobbý. Er ekki tilvalið að leyfa henni að fara í leikfélagið þarna ?? Það er gott leikfélag á króknum

Kossar, knús og föðm á ykkur þarna fyrir norðan, farið vel með ykkur.

Linda litla, 23.4.2008 kl. 04:51

2 Smámynd: Kristín Guðbjörg Snæland

Haldið ekki að hann sé flottur strákurinn....!!!!!

Kristín Guðbjörg Snæland, 23.4.2008 kl. 10:38

3 identicon

Gleðilegt sumar elsku besta sætasta! Þú getur ekki ímyndað þér hvað var gott að spjalla við þig um daginn og "skiptast á myndum" ... ha h aha!! Þú ert sumardís af bestu gerð.

kærar kveðjur og knús frá Agureyris....

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson 25.4.2008 kl. 11:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Í kaffi hjá Dóru...

Höfundur

Dóra Maggý

Dóra Maggý

Hér tala ég um allt milli himins og jarðar,ég á 4 börn og ég tala svolítið um þau líka,einnig eru áhugamálin mín (fyrir utan börnin ) komin í geymslu í bili en þau eru,ferðalög,góðar bækur, hafa gaman í góðra vina hópi,versla og fl. og fl. velkomin og njótið að lesa um mig og mín áhugamál

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Apríl 09 mamamía partý,k. 40 ára,snjókarl og fl 071
  • Apríl 09 mamamía partý,k. 40 ára,snjókarl og fl 030
  • Apríl 09 mamamía partý,k. 40 ára,snjókarl og fl 007

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 751

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband