Nemendamót !!

Senn líður að nemendamótinu og ég er farinn að hlakka mikið til,ég ætla alein vestur en það verður örugglega mjög skrítið og erfitt þar sem ég hef ekki farið neitt án barnanna síðan að Berglind og Kristján giftu sig og það eru að verða kominn 4 ár síðan,en þá fór ég bara frá í einn sólarhring,en núna fer ég eina helgi.... veit ekki hvernig ég fer að þessu,kann ekki að vera án barnanna ég verð örugglega alltaf hringjandi og nýt mín ekkert Wink jújú..þetta er líka nauðsynlegt að gera bæði fyrir mig og börnin,kem bara til þeirra með endurhlaðin batterý og miklu betri í skapinu og æðisleg mamma í alla staði hehehe....  og allir græða !! er það ekki ??  en Þóra karls ætlar að taka á móti árgangnum í hádeginu á laugardeginum,mjög rausnarlega boðið og hlakka mikið til að hitta hana Þóru mína,þetta verður heljarmikil skemmtun hjá okkur og öll helgin er gjörsamlega fullbókuð......... GEGGJAÐ !!!!

Ég fór í klippingu og strípur í dag og lille manninn minn ætlaði bara ekki að þekkja mömmu sína,ég lét nefnilega klippa mig nánast stutt og ég er alveg hæstánægð með þetta,þvílíkur léttir að losna við allt þetta hár sem var að gera mig geðveika og ég meina það,ætla aldrei aftur að safna hári... ALDREI ALDREI !!!!    svo fór ég í ljós á eftir..... bara æðislegt og afslappandi.....

En ég verð að segja ykkur.... þetta er svo fyndið,ég er nefnilega með frípakkann frá skjánum sem er ekki frásögu færandi nema hvað.....  jú einn morguninn ætlaði ég að horfa á One three Hill á skjáheiminum,og ég kemst ekki inn og ég er búin að taka kortið út og inn aftur nokkrum sinnum,slökkva  í 30 sec. og athuga með allar tengingarnar aftur og aftur en ekkert gekk,nú ég hringi þá í þjónustuna hjá símanum.. og símsvarinn segir - þú ert númer 5 í röðinni og ég bíð og bíð,svo kemur þú ert númer 4 í röðinnni og ég hugsa,á ég að nenna að bíða þetta og svo er komið að þú ert númer 2 í röðinni og ég skoða betur það sem stendur um myndlykilinn á skjánum og leiðbeiningarnar og ég fer yfir þetta og jú ég er búin að gera þetta og þetta og þetta og var orðin svoooo pirruð að ég ætlaði að hætta hjá símanum og fara bara í hive því þetta helv... drasl væri bara ekkert að virka.. Devil .. og svo heyrist þú ert númer 1 í röðinni,þá les ég.. tékkið á adsl tengingunni og ég lít á tölvuna mína og´sé að ég´er ekki búin að kveikja á henni og kveiki svo á perunni þegar að ég heyri... já þjónustuverið góðann daginn og ég segi  shit.. og skelli á,nei nei þá fattaði ég það að það er slökkt á helv.. rádernum hehehe.... þvílíkur asni,búin að æsa mig og rugla með þetta allt í ca klukkutíma.. allt til einskis...  hvað maður etur gjörsamlega lokað,en ungligurinn var farinn að vera í tölvunni langt fram á nætur að ég var farin að slökkva alltaf á rádernum og bara gleymdi því auðvitað svona get ég verið seinheppinn ,en ég farin að sofa.. góða nótt....Heart kv. Dóran


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragna Fanney Gunnarsdóttir

Ég verð að sjá nýju klippinguna......

og njóttu þín svo að vera alein heila helgi, ég veit af reynslunni að þetta er alveg frábært að fá að hlaða batteríin...........

kv Ragga F

Ragna Fanney Gunnarsdóttir, 6.5.2008 kl. 08:22

2 identicon

Ég verð líka að fá að sjá þig áður en þú verð vestur.

NJÓTTU NJÓTTU ÞESS AÐ VERA ALEIN MAÐUR ÞARF LÍKA AÐ KUNNA AÐ VERA ALEIN ÁN BARNANNA ÞAÐ VERÐUR GAMAN FYRIR ÞIG.

Knús.

Þorgerður

Þorgerður 6.5.2008 kl. 08:44

3 Smámynd: Kristín Guðbjörg Snæland

Góða skemmtun á bekkjarmótinu. Ég verð í 25 ára fermingarafmæli sama kvöld svo við skulum mála bæinn rauðan!!! Ég er líka búin að fara í sjæningu og við verðum lang... lang... flottastar

Kristín Guðbjörg Snæland, 6.5.2008 kl. 09:20

4 Smámynd: Linda litla

Hvernig væri nú að Hallgrímur myndi smella eins og einni mynd af þér sem að þú hendir hérna inn á síðuna og leyfir okkur að njóta sem ekki eru að fara á þetta bekkjarmót

Það verður þvílík viðbrigði fyrir þig að fara í frí barnlaus og karllaus, ALEIN. Njóttu þess í botn, það skeður víst ekki of oft hjá þér.

Kveðja til þín á Krókinn.

Linda litla, 6.5.2008 kl. 11:08

5 Smámynd: The suburbian

Sammála síðasta ræðumanni, ég get ekki beðið eftir að sjá þig þannig að þú verður að skella inn einni mynd svo ég þekki þig nú þegar við hittumst í næstu viku, djók  En án gríns að þá bara get ég varla beðið eftir að sjá þig og knúsa þig og djamma með þér því það eru komin mörg ár síðan við djömmuðum saman, ég og þú. Ekki einu sinni í brulluppinu mínu gátum við tjúttað því við Stjáninn fórum svo snemma í bústaðinn með túnfiskdósinni he, he  (þú manst, það gleymdist að setja mat í bústaðinn og það eina sem í boði var, var freyðivín og einmana túnfiskdós á hillu) 

The suburbian, 6.5.2008 kl. 12:39

6 Smámynd: Heiðrún Björk Jóhannsdóttir

Fídd fíó.. nýtt her-dú og alles. Hlakka til að sjá þig og restina af árganginum þetta verður geegt skettlett hjá okkur!!! 

Heiðrún Björk Jóhannsdóttir, 6.5.2008 kl. 17:12

7 Smámynd: Dóra Maggý

Jú stelpur,það verður sko gaman hjá okkur,hvað varðar nýju klippinguna þá er ég ekki búin að taka mynd ennþá en hún kemur... Berglind er nú búin að sjá hana og takk fyrir allt !!!  og takk fyrir frábær comment mér þykir svoo vænt um ykkur... mig hlakkar mikið til að djamma með ykkur "72 módelunum og elsku Kristín mín skemmtu þér rosalega vel á þínu móti hehehe...!!!   :) knússs til ykkar allra...

Dóra Maggý, 12.5.2008 kl. 00:18

8 identicon

Hæ hæ Dóra Maggý!

Hlakka mikið til að sjá þig eftir einungis 2 daga.  kveðja Hanna M. 

Hanna Mjöll 14.5.2008 kl. 16:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Í kaffi hjá Dóru...

Höfundur

Dóra Maggý

Dóra Maggý

Hér tala ég um allt milli himins og jarðar,ég á 4 börn og ég tala svolítið um þau líka,einnig eru áhugamálin mín (fyrir utan börnin ) komin í geymslu í bili en þau eru,ferðalög,góðar bækur, hafa gaman í góðra vina hópi,versla og fl. og fl. velkomin og njótið að lesa um mig og mín áhugamál

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Apríl 09 mamamía partý,k. 40 ára,snjókarl og fl 071
  • Apríl 09 mamamía partý,k. 40 ára,snjókarl og fl 030
  • Apríl 09 mamamía partý,k. 40 ára,snjókarl og fl 007

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 751

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband